Arsène Wenger sá Arsenal koma til baka gegn West Ham

Andri Már Eggertsson skrifar
Wolverhampton Wanderers v Arsenal FC - Premier League WOLVERHAMPTON, ENGLAND - NOVEMBER 12: William Saliba of Arsenal celebrates with team mate Martin Odegaard during the Premier League match between Wolverhampton Wanderers and Arsenal FC at Molineux on November 12, 2022 in Wolverhampton, United Kingdom. (Photo by Visionhaus/Getty Images)

Arsenal styrkti stöðu sína á toppnum með 3-1 sigri á West Ham United eftir að hafa lent marki undir í hálfleik.

West Ham fékk vítaspyrnu í fyrri hálfleik sem Said Benrahma skoraði úr þar sem hann skaut beint á markið. Staðan í hálfleik var 0-1.

Bukayo Saka jafnaði leikinn á 53. mínútu og á næstu sextán mínútum bætti Arsenal við tveimur mörkum og heimamenn gerðu út um leikinn.

Bukayo Saka hefur skorað í þremur leikjum í röð sem fara fram á annan í jólum. Síðasti leikmaður Arsenal til að skora í þremur leikjum í röð sem spilað á annan í jólum er Thierry Henry en hann var á vellinum í kvöld.

Eddie Nketiah var í byrjunarliði Arsenal í kvöld en hann hefur byrjað ellefu leiki og skorað ellefu mörk. Eddie Nketiah gerði þriðja mark Arsenal í kvöld eftir stoðsendingu frá Martin Ødegaard.

Arsène Wenger þjálfaði Arsenal frá 1996-2018 og vann þrisvar sinnum ensku úrvalsdeildina. Wenger var í fyrsta skipti mættur aftur á Emirates-völlinn eftir að hann lét af störfum sem þjálfari Arsenal árið 2018. 

Bein lýsing

Leikirnir

    Fleiri fréttir

    Sjá meira