Fótbolti

Sverrir og félagar aftur á sigurbraut

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK í kvöld.
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK í kvöld. Getty

Eftir tvo deildarleiki í röð án sigurs eru Sverrir Ingi Ingason og félagar hans í PAOK komnir aftur á sigurbraut eftir öruggan 0-3 útisgiur gegn Ionikos í kvöld.

Sverrir var í byrjunarliði PAOK og lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá liðinu. Það voru þeir Filipe Soares og Nelson Oliveira sem sáu um markaskorun liðsins í fyrri hálfleik áður en Douglas Augusto bætti þriðja markinu við snemma í síðari hálfleik.

PAOK er nú í fimmta sæti grísku úrvalsdeildarinnar með 22 stig eftir tólf leiki, 15 stigum meira en Ionikos sem situr í tólfta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×