Tónlist

„Gaman að gera eitthvað úr engu“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Þessir strákar eru að stíga sín fyrstu skref í heimi tónlistarinnar og stefna að því að ná langt.
Þessir strákar eru að stíga sín fyrstu skref í heimi tónlistarinnar og stefna að því að ná langt. Tónhylur

Hópur af ellefu strákum sem allir eru á fyrsta ári í menntaskóla sendi frá sér fjögurra laga smáskífuna „MMVI“ síðastliðinn föstudag. Þeir gáfu fyrst út lagið „Sama“ fyrir rúmum þremur vikum síðan en lagið er komið með 35 þúsund hlustanir á streymisveitunni Spotify.

Eflir unga lagahöfunda

Verkefnið er unnið í samstarfi við Tónhyl en tónlistarmaðurinn Kristján Sturla starfar þar og hefur verið strákunum innan handar við verkefnið.

„Tónhylur er að fara af stað með útgáfu á ungu tónlistarfólki úr akademíu félagsins en félagið hefur það meðal annars að markmiði að efla unga lagahöfunda. 

Útgáfan er liður í því að hjálpa ungu tónlistarfólki að koma sér á framfæri með því að gefa út undir merkjum Tónhyls þegar þau eru að byrja þá sem hluti af stærri heild tónlistarfólks sem styður við hvort annað,“ segir Kristján Sturla. 

Strákarnir hafa gaman að því að koma fram.Tónhylur

Fjölbreyttir styrkleikar

Strákarnir tilheyra því fyrsta hópi sem er hluti af þessu verkefni en þeir hafa verið hjá Tónhyl í rúm tvö ár. 

Þeir eru sem áður segir ellefu talsins og heita Kristján Saenz, Theodór Gísli Sigurgeirsson, Egill Airi Daníelsson, Tryggvi Þór Torfason, Ísak Örn Friðriksson, Helgi Trausti Stefánsson, Maron Birnir Reynisson, Lindi Banushi, Stefán Logi Hermannsson, Ívar Páll Arnarsson og Andri Þór Hrafnsson. 

Allir komu að gerð plötunnar að einhverju leyti, sumir semja ​á meðan að aðrir rappa eða syngja.

Innblástur frá hver öðrum

Blaðamaður tók púlsinn á strákunum og fékk að heyra nánar frá verkefninu.

„Innblásturinn kemur úr mörgum áttum,“ segja strákarnir og nefna bæði innlend og erlend dæmi á borð við The Weeknd, Aron Can, Birni, Banger Boy, Travis Scott, Daniil og fleiri.

„Svo erum við mikið að kasta á milli hugmyndum og fá innblástur frá hver öðrum. Auk þess er mikið af fólki í Tónhyl sem gefur okkur innblástur.“

Þeir segjast spenntir að spila fyrir fleira fólk og leyfa stærri hópi að heyra tónlistina sína.Tónhylur

Þeir segja margt skemmtilegt við tónlistina og stefna langt.

„Það er svo gaman að byrja á einhverri nýrri pælingu og sjá hana verða til. 

Að gera eitthvað úr engu, vinna í stúdíóinu og vinna með skemmtilegu fólki. Svo er skemmtilegt að hlusta á lög sem þú bjóst til sjálfur.

Framtíðin er spennandi hjá þessum upprennandi tónlistarmönnum. 

„Við stefnum á að halda áfram að verða betri og auka þekkingu okkar í að búa til tónlist. Við ætlum að gera meiri tónlist saman. Okkur langar að spila meira live, taka fleiri gigg og verða góðir í því. Að fá að spila á alls konar stöðum og leyfa fleira fólki að heyra tónlistina okkar.“


Tengdar fréttir

„Eftir þetta kvöld breyttist allt fyrir mig“

Síðastliðin ár hafa verið mikill tilfinningarússíbani hjá tónlistarkonunni Eydísi Evensen en hún var hálfpartinn uppgötvuð á Iceland Airwaves árið 2018 og hefur síðan þá spilað víðs vegar um Evrópu. Eydís kom aftur fram á Airwaves í ár en hún segir alltaf best að spila heima á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×