PSV vann öruggan sigur gegn Arsenal | Alfons og félagar köstuðu frá sér stiginu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Luuk de Jong átti frábæra innkomu í liði PSV.
Luuk de Jong átti frábæra innkomu í liði PSV. Prestige/Soccrates/Getty Images

PSV vann nokkuð öruggan 2-0 sigur er liðið tók á móti Arsenal í næst seinustu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Í sama riðli gerðu Alfons Sampsted og félagar hans í Bodö/Glimt 1-1 jafntefli gegn FC Zürich og eru því á leið í útsláttarkeppni Sambandsdeildarinnar.

Þrátt fyrir að vera með yfirhöndina í framan af fyrri hálfleik tókst gestunum í Arsenal ekki að ógna marki PSV að viti. Heimamenn grðu það hins vegar og skoruðu tvö mörk í fyrri hálfleik, en bæði voru þau dæmd af vegna rangstöðu og staðan var því enn markalaus þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Luuk De Jong kom inn á sem varamaður fyrir heimamenn í hálfleik og átti hann eftir að reynast mikilvægur í sigri liðsins. Hann lagði upp fyrra markið fyrir Joey Veerman á 55. mínútu og skoraði svo sjálfur átta mínútum síðar.

Heimamenn áttu svo eftir að setja boltann einu sinn enn í netið, en í þriðja skiptið í leiknum var markið dæmt af vegna rangstöðu.

Niðurstaðan því 2-0 sigur PSV og liðið er nú með tíu stig í öðru sæti riðilsins, tveimur stigum á eftir Arsenal. Eftir úrslit kvöldsins eru bæði þessi lið komin áfram í útsláttarkeppnina og eiga bæði möguleika á efsta sæti riðilsins sem gefur beint sæti í 16-liða úrslit.

Þá þurftu Alfons Sampsted og félagar hans í Boö/Glimt að sætta sig við 2-1 tap er liðið heimsótti FC Zürich á sama tíma. Staðan var 1-1 eftir að venjulegum leiktíma lauk, en Antonio Marchesano tryggði heimamönnum sigurinn með marki á fjórðu mínútu uppbótartíma.

Sigur eða jafntefli hefði tryggt Bodö/Glimt þriðja sæti riðilsins og þar með sæti í Sambandsdeildinni, en liðið þarf nú að vinna PSV í lokaumferðinni eða treysta á að Zürich tapi gegn Arsenal.

Úrslit kvöldsins

A-riðill

FC Zürich 2-1 Bodö/Glimt

PSV Eindhoven 2-0 Arsenal

B-riðill

AEK LArnaca 3-3 Dynamo Kiev

Fenerbache 3-3 Rennes

C-riðill

Ludogorets Razgrad 0-1 Real Betis

D-riðill

Malmö 0-2 Union St. Gilloise

Union Berlin 1-0 SC Braga

F-riðill

Lazio 2-1 FC Midtjylland

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira