Berg­lind Björg kom ekki við sögu í marka­lausu jafn­tefli Real og PSG

Sindri Sverrisson skrifar
Úr leiknum í Madríd í kvöld.
Úr leiknum í Madríd í kvöld. Berengui/Getty Images

Leikur Real og PSG í kvöld var ekki mikið fyrir augað en honum lauk með markalausu jafntefli. Athygli vakti að Kheira Hamraoui lék með PSG í kvöld en hún hefur ekkert spilað síðan hún varð fyrir fólskulegri árás fyrir tæpu ári.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir sat allan tímann á varamannabekk þó svo að liðinu hafi vantað mark til að tryggja sér sigurinn. Eftir leik kvöldsins er Real er með fjögur stig á toppi A-riðils en Chelsea getur hirt toppsætið með sigri síðar í kvöld. PSG er með eitt stig að loknum tveimur leikjum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira