Svar við bréfi Helgu keppir á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tallinn Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 26. október 2022 13:00 Birgitta Björnsdóttir, Hera Hilmarsdóttir, Ása Helga Hjörleifsdóttir, Aníta Briem, Bergsveinn Birgisson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Vísir/Hulda Margrét Kvikmyndin Svar við Bréfi Helgu eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur verður sýnd á Pöff, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tallinn, sem fer fram dagana 11-27. nóvember.
Ástarsagan með þeim Þorvaldi Davíð Kristjánssyni, Heru Hilmarsdóttur og Anítu Briem í aðalhlutverkum var frumsýnd hér á landi í Háskólabíói fyrr í haust og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Kvikmyndahátíðin í Tallinn er ein sú stærsta í Norður - Evrópu og mun Svar við bréfi Helgu keppa svokölluðum Baltic Competition flokki og etur þar kappi við kvikmyndir frá öllum heimshornum. Kvikmyndin er byggð á samnefndri bók eftir Bergsvein Birgisson og fjallar um hinn unga bónda Bjarna sem verður ástfanginn af Helgu, konunni á næsta bæ. Þau hefja ástríðufullt, forboðið ástarsamband, og brátt fara tilfinningarnar að flæða jafn hömlulaust og hafið sem umkringir þau. Sagan gerist á Ströndum á fimmta áratug síðustu aldar. Hera Hilmar í hlutverki sínu í myndinni Svar við bréfi Helgu.Svar við bréfi Helgu Ása Helga skrifar jafnframt handritið ásamt þeim Bergsveini og Otto Geir Borg. Í öðrum hlutverkum eru Björn Thors, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Arnmundur Ernst Björnsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Þorsteinn Gunnarsson, Sóley Elíasdóttir og Sigurður Sigurjónsson. Myndin er framleidd af þeim Birgittu Björnsdóttur og Skúla Fr. Malmquist fyrir Zik Zak og Vintage Pictures. Stiklu úr myndinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Bíó og sjónvarp Eistland Kvikmyndagerð á Íslandi Tengdar fréttir Stjörnurnar skinu skært á hátíðarsýningu Svar við bréfi Helgu Það var troðfullt út úr húsi í Háskólabíói í gær á sérstakri hátíðarfrumsýningu á kvikmyndinni Svar við bréfi Helgu. Stjörnur myndarinnar ljómuðu skært á rauða dreglinum fyrir sýningu. 1. september 2022 15:38 Mörg járn í eldinum og rauði dregillinn með Jason Momoa Stórstjarnan Hera Hilmarsdóttir fer með hlutverk Helgu í kvikmyndinni Svar við bréfi Helgu þar sem hún leikur á móti Þorvaldi Davíð og Anítu Briem. Hún fer einnig með hlutverk í þáttunum „See“ frá streymisveitunni Apple TV+ þar sem hún leikur meðal annars á móti Jason Momoa. 5. september 2022 20:00 Húsfyllir á forsýningu Svars við bréfi Helgu í Trékyllisvík Sérstök forsýning var á kvikmyndinni Svar við bréfi Helgu í Árneshreppi um helgina. Íbúar fjölmenntu í bíó. 29. ágúst 2022 14:01 Mest lesið Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Lífið Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Lífið HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Lífið Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Lífið Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Lífið Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lífið Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Lífið Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt Lífið Fleiri fréttir Sælkerabíó á RIFF: Sjónræn matarveisla á Plöntunni og smakkbíó á Ramen Momo Sannfærði Balta um að snúa aftur Fróði og Gandálfur snúa aftur í leitinni að Gollri Terence Stamp látinn Auglýsa eftir innsendingum til íslensku sjónvarpsverðlaunanna Nýr Rambo fundinn Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Óþekkjanleg stjarna Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Reykjavík Visual Effects tilnefnt til tveggja Emmy-verðlauna Sleðinn úr Citizen Kane orðinn næstverðmætasti leikmunurinn Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Sjá meira
Stjörnurnar skinu skært á hátíðarsýningu Svar við bréfi Helgu Það var troðfullt út úr húsi í Háskólabíói í gær á sérstakri hátíðarfrumsýningu á kvikmyndinni Svar við bréfi Helgu. Stjörnur myndarinnar ljómuðu skært á rauða dreglinum fyrir sýningu. 1. september 2022 15:38
Mörg járn í eldinum og rauði dregillinn með Jason Momoa Stórstjarnan Hera Hilmarsdóttir fer með hlutverk Helgu í kvikmyndinni Svar við bréfi Helgu þar sem hún leikur á móti Þorvaldi Davíð og Anítu Briem. Hún fer einnig með hlutverk í þáttunum „See“ frá streymisveitunni Apple TV+ þar sem hún leikur meðal annars á móti Jason Momoa. 5. september 2022 20:00
Húsfyllir á forsýningu Svars við bréfi Helgu í Trékyllisvík Sérstök forsýning var á kvikmyndinni Svar við bréfi Helgu í Árneshreppi um helgina. Íbúar fjölmenntu í bíó. 29. ágúst 2022 14:01