Bíó og sjónvarp

Attenborough hvetur til aðgerða til þess að bjarga megi dýralífi jarðar

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Rödd náttúrufræðingsins David Attenborough þekkja margir.
Rödd náttúrufræðingsins David Attenborough þekkja margir. Getty/David M. Benett

Tilfinningaþrungið myndbrot úr þáttunum „Frozen Planet“ með David Attenborough hvetur fólk til þess að huga að áhrifum eigin tilveru á hlýnun jarðar og grípa í taumana áður en það verði of seint.

David Attenborough er sennilega einn frægasti náttúrufræðingur heims og hafa margir vanist því að heyra rödd hans streyma inn í stofu til sín. Röddinni fylgja oft falleg myndbönd af mögnuðu dýralífi en Attenborough hefur lengi lagt áherslu á nauðsyn þess að hugsað sé vel um umhverfið og dýralífið sem þar finnst.

Í myndbandinu sem um ræðir, sem er hluti af annarri þáttaröð „Frozen planet“ þátta breska ríkissjónvarpsins BBC og David Attenborough, má sjá umhverfissinna hvetja fólk til aðgerða til þess að hægt sé að bjarga dýralífi jarðar.

Áhorfendur eru hvattir til þess að huga að eigin neyslumynstrum, leggja sig fram við að minnka eigið kolefnisfótspor og hvetja stjórnmálafólk til frekari aðgerða. 

Attenborough segir mikilvægt að mannkynið standi við loforð sín um að sporna við hlýnun jarðar og koma í veg fyrir að hlýnunin verði meiri en 1,5 gráða.

„Ef við eigum að eiga einhverja von um að bjarga því sem eftir er af frosnu plánetunni okkar og bjarga okkur sjálfum frá hrikalegum afleiðingum þess að tapa henni, verðum við að halda okkur við þessa skuldbindingu og standa við hana, sama hversu erfitt það er,“ segir Attenborough.

Attenborough leggur, ásamt fleirum, áherslu á það að tíminn sé naumur en jarðarbúar geti enn gert eitthvað í málunum sjálf.

„Við getum gert þetta, við höfum valdið til þess að gera þetta. Við getum gert þetta, við verðum að gera þetta. Þá verður framtíð fyrir plánetuna okkar,“ segir Attenborough.

Nýlega lauk árlegri ráðstefnu Hringborðs Norðurslóða (e. Arctic Circle) hér á landi. Sérfræðingar víðsvegar frá lýstu yfir áhyggjum sínum vegna hlýnunar jarðar og sögðu mikilvægt að bregðast við sem fyrst. 

Myndbandið með Attenborough má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Villtum dýrum fækkað um 70 prósent á fimmtíu árum

Villtum dýrum á jörðinni hefur fækkað um tæp 70 prósent á rétt tæpum fimmtíu árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu en þar er ofurneyslu mannfólks, minnkun skóglendis vegna ágangs manna og mengun þeirra kennt um þessa gríðarlegu fækkun dýra. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×