Potter enn þá ósigraður eftir markalaust jafntefli gegn Brentford

Graham Potter er áfram ósigraður með lið Chelsea.
Graham Potter er áfram ósigraður með lið Chelsea. Getty Images

Chelsea og Brentford gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og Graham Potter er því áfram ósigraður hjá Chelsea eftir að hann tók við liðinu af Thomas Tuchel í september.

Ivan Toney komst nærst því að skora í fyrri hálfleik en Kepa Arrizabalaga, markvörður Chelsea, varði kollspyrnu hans naumlega. 

Kepa hélt aftur hreinu.Getty Images

Kepa virðist vera að ganga í gegnum endurnýjun lífdaga undir stjórn Potter hjá Chelsea en markvörðurinn hefur leikið alla leiki Chelsea síðan Potter tók við og hefur staðið sig frábærlega með fimm hrein lök í síðustu fimm leikjum í öllum keppnum.

Gestirnir sóttu meira undir lok leiks en tókst þó ekki að koma boltanum framhjá David Raya, markverði Brentford. Lokaniðurstaðan varð því 0-0.

Chelsea er í 4. sæti úrvalsdeildarinnar með 20 stig eftir jafnteflið en Chelsea hefur leikið 10 leiki í deildinni. Brentford er á sama tíma með 14 stig í 9. sæti eftir 11 leiki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira