Sjöhundraðasta mark Ronaldo tryggði Man Utd endurkomusigur

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Marki númer 700 fagnað.
Marki númer 700 fagnað. vísir/Getty

Manchester United heimsótti Everton í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og vonaðist til að svara skellinum gegn Man City á góðan hátt.

Það blés ekki byrlega fyrir lærisveina Erik Ten Hag þegar Alex Iwobi náði forystunni fyrir heimamenn strax á 5.mínútu þegar hann skoraði með góðu skoti utan vítateigs eftir að Casemiro hafði tapað boltanum á klaufalegan hátt á miðjum vellinum.

Gestirnir voru fljótir að svara því brasilíski sóknarmaðurinn Antony skoraði laglegt mark á 15.mínútu.

Eftir hálftíma leik kom Cristiano Ronaldo inn af bekknum vegna meiðsla Anthony Martial og portúgalski markahrókurinn átti eftir að reynast örlagavaldurinn.

Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks fékk Ronaldo góða sendingu í gegnum vörn Everton frá Casemiro og kláraði Portúgalinn færið vel og kom Man Utd í forystu. Þetta var sjöhundraðasta mark kappans á frábærum ferli.

Ekkert löglegt mark var skorað í síðari hálfleik og 1-2 sigur Man Utd staðreynd. Lyftir liðið sér þar með upp í 5.sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira