Aftur skoraði Haaland er City sótti toppsætið

Erling Haaland var á skotskónum gegn Southampton.
Erling Haaland var á skotskónum gegn Southampton. Getty Images

Manchester City vann öruggan 4-0 sigur á Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Erling Haaland skoraði aftur, í sínum sjöunda leik í röð í deildinni.

Joao Cancelo skoraði fyrsta mark City á 20. mínútu leiksins eftir undirbúning Phil Foden sem skoraði svo sjálfur annað mark leiksins rúmum 12 mínútum síðar og City leiddi með tveimur mörkum í leikhlé.

Riyad Mahrez gerði svo þriðja mark City stuttu eftir hálfleikinn áður en Haaland gerði sitt 15. mark í ensku úrvalsdeildinni í aðeins níu leikjum á 65. mínútu og þar við sat, 4-0.

Með sigrinum fer Manchester City í efsta sæti deildarinnar með 23 stig. City er nú tveimur stigum á undan Arsenal sem á leik til góða á morgun gegn Liverpool. Southampton er á sama tíma í 16. sæti með sjö stig, einu stigi fyrir ofan fallsvæðið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira