Menning

Þau sóttu um em­bætti safn­stjóra Lista­safns Ís­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Listasafn Íslands.
Listasafn Íslands. Stjr

Alls bárust sjö umsóknir um embætti safnstjóra Listasafns Íslands, en staðan var auglýst þann 27. ágúst síðastliðinn og umsóknarfrestur rann út þann 20. september síðastliðinn.

Staðan var auglýst laus til umsóknar eftir að Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra ákvað að skipa Hörpu Þórsdóttur safnstjóra í embætti þjóðminjavarðar líkt og mikið hefur verið fjallað um. 

Þriggja manna hæfnisnefnd skipuð af menningar- og viðskiptaráðherra mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra. Menningar- og viðskiptaráðherra skipar í embættið til fimm ára.

Nöfn umsækjenda:

  • AlmaDís Kristinsdóttir, safnstjóri
  • Björg Erlingsdóttir, sveitarstjóri
  • Dagný Berglind Gísladóttir, verkefnastjóri
  • Gunnar B. Kvaran, ráðgjafi
  • Hanna Styrmisdóttir, prófessor
  • Ingibjörg Jóhannsdóttir, skólastjóri
  • Vigdís Rún Jónsdóttir, verkefnastjóri sýninga

Staða safnstjóra var auglýst eftir að Harpa var flutt í embætti þjóðminjavarðar en í auglýsingunni kom fram að leitað væri að einstaklingi til að stýra Listasafni Íslands, sem hafi sýnt ótvíræða leiðtogafærni og til að bera þá þekkingu, reynslu og aðra eiginleika til að takast á við það verkefni, svo sem frekar greinir í auglýsingu þessari.

Í framhaldinu eru starfsskyldur safnstjóra nefndar. 


Dagleg stjórnun og rekstur Listasafns Íslands svo sem fyrir er mælt í lögum og reglum

  • Yfirstjórn og varðveisla safneignar
  • Fjárhagsleg ábyrgð, áætlanagerð um meðferð fjármuna og rekstur safnsins
  • Stjórnun listaverkainnkaupa og listaverkagjafa til safnsins
  • Stjórnun sýningarhalds, fræðslustarfsemi, útgáfu og þjónustu við safngesti þ.m.t vörusölu
  • Stjórnun lána á listaverkum til hins opinbera og til annarra safna í samræmi við lög og reglur
  • Skipulagning og tilhögun rannsókna sem safnið hefur með höndum
  • Leiða ráðgjafahlutverk og samvinnu viðurkenndra listasafna á landsvísu
  • Móta framtíðarsýn fræðslu, miðlunar og sýningarhalds Listasafns Íslands
  • Ábyrgð á öryggi safneignar og húsakosts
  • Ábyrgð á þróun sýningahalds og rannsókna- og fræðslustarfsemi
  • Annast umsýslu safneignar, aðgengi og kynningu fyrir almenning og opinbera gesti
  • Að vera menningar- og viðskiptaráðráðuneyti til ráðgjafar um myndlist og listsögulegan menningararf

Hæfniskröfur og eiginleikar umsækjanda:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og staðgóð þekking á starfssviði Listasafnsins
  • Þekking á starfsumhverfi og lögum um Listasafn Íslands
  • Framúrskarandi leiðtogahæfni, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði
  • Árangursrík reynsla af stjórnun og mótun liðsheildar
  • Árangursrík reynsla af mannauðsmálum, mannþekking og drifkraftur
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og lagaumhverfi opinberra stofnana
  • Þjónustulund, ásamt lipurð og færni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla og hæfileiki til að koma fram opinberlega og við miðlun upplýsinga
  • Góð íslensku- og enskukunnátta ásamt hæfni til og tjá sig í ræðu og riti

Samband íslenskra myndlistarmanna og Listfræðafélag Íslands gerðu athugasemdir við auglýsinguna og þá sér í lagi að meiri áhersla væri lögð á leiðtogahæfni en myndlistarþekkingu í auglýsingunni um stöðu safnstjóra Listasafns Íslands. Var menningarmálaráðherra hvött til að endurskoða auglýsinguna sem félögin sögðu heldur ekki hafa verið gerða með nægjanlega góðum fyrirvara.


Tengdar fréttir

Saka Lilju um metnaðar­leysi við ráðningu eftir­manns Hörpu

Samband íslenskra myndlistarmanna og Listfræðafélag Íslands gera athugasemdir við að meiri áhersla sé gerð á leiðtogahæfni en myndlistarþekkingu í auglýsingu um stöðu safnstjóra Listasafns Íslands. Þeir hvetja Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra til að endurskoða auglýsinguna sem sé heldur ekki gert með nægjanlega góðum fyrirvara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×