Serbía pakkaði Sví­þjóð saman og mætir Noregi í úr­slita­leik

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þrjú mörk og úrslitaleikur gegn Noregi um sæti í A-deild á næstu dögum. Ekki slæmt kvöld hjá Aleksandar Mitrović.
Þrjú mörk og úrslitaleikur gegn Noregi um sæti í A-deild á næstu dögum. Ekki slæmt kvöld hjá Aleksandar Mitrović. Srdjan Stevanovic/Getty Images

Serbía vann 4-1 sigur á Svíþjóð í Þjóðadeildinni í fótbolta í kvöld. Það þýðir að Noregur og Serbía mætast í úrslitaleik um sæti í A-deild.

Viktor Claesson, leikmaður FC Kaupmannahafnar, kom Svíþjóð óvænt yfir þegar stundarfjórðungur var búinn af leiknum. Serbía er hins með Aleksandar Mitrović í sínum röðum og sá hefur verið sjóðandi heitur í upphafi tímabils.

Mitrović jafnaði metin, að sjálfsögðu með skalla, aðeins þremur mínútum eftir að Claesson kom Svíþjóð yfir. Staðan orðin 1-1 og þannig virtist hún ætla að vera þegar flautað var til hálfleiks.

Það er þangað til Serbía fékk hornspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Dušan Tadić gaf fyrir og Mitrović stangaði knöttinn í netið. Staðan í hálfleik 2-1 Mitrović í vil. Framherjinn gerði svo út um leikinn í upphafi síðari hálfleiks þegar hann skoraði þriðja mark Serbíu þó svo að aðstoðardómarinn hafi flaggað rangstöðu.

Eftir að atvikið var skoðað af myndbandsdómara leiksins kom í ljós að ekki var um rangstöðu að ræða og markið stóð. Saša Lukić bætti svo við fjórða marki Serbíu áður en leiktíminn rann út, lokatölur 4-1 Serbíu í vil.

Úrslitin þýða að Serbía og Noregur eru með 10 stig á toppi riðilsins. Þjóðirnar mætast í Ósló eftir þrjá daga í úrslitaleik um sæti í A-deild Þjóðadeildar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira