Orsic tryggði Dinamo Zagreb óvæntan sigur gegn Chelsea

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Mislav Orsic reyndist hetja Dinamo Zagreb í kvöld.
Mislav Orsic reyndist hetja Dinamo Zagreb í kvöld. Luka Stanzl/Pixsell/MB Media/Getty Images

Mislav Orsic skorapi eina mark leiksins er Dinamo Zagreb tók á móti Chelsea í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 1-0 og óvæntur sigur heimamanna því staðreynd.

Orsic kom heimamönnum í forystu strax á 13. mínútu leiksins með góðu marki eftir undirbúning Bruno Petkovic. Við markið færðu heimamenn sig aftar á völlinn og yfirburður Chelsea urðu miklir eftir það.

Þrátt fyrir þessa yfirburði gestanna tókst þeim ekki að jafna metin fyrir hálfleikshléið og staðan því 1-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Svipaða sögu er að segja af síðari hálfleiknum. Gestirnir í Chelsea voru mikið meira með boltann og sóttu stíft, en vörn heimamanna hélt vel og gaf fá færi á sér.

Gestirnir fundu þó nokkrar opnanir á varnarleik Dinamo Zagreb, en inn vildi boltinn ekki og niðurstaðan því 1-0 sigur heimamanna.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira