Innlent

Fagnar því að olíufélögin séu farin að taka við sér en segir það löngu tímabært

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Runólfur Ólafsson,framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
Runólfur Ólafsson,framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Vísir/Egill

Bensínlítrinn er kominn undir 300 krónur hjá Costco og virðast önnur félög einnig lækka sín verð um þessar mundir. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda segir þetta löngu tímabært þar sem Ísland sé með hæsta bensínverð í Evrópu. Þó undirliggjandi verðlækkanir séu til staðar sé mikil óvissa fram undan og viðbúið að eldsneytisverð verði enn hátt. 

Bensínlítrinn fór fyrst yfir 300 krónur í mars og í júní var lítrinn kominn yfir 350 krónur á flestum bensínstöðvum landsins. Samkvæmt upplýsingum á vef Aurbjargar er Costco nú með lægsta eldsneytisverðið á landinu en bensínlítrinn er þar á rúmar 298 krónur. Hjá öðrum félögum er lægsta verðið tæplega 302 krónur.

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir löngu tímabært að verðið lækki.

„Við höfum gagnrýnt að félögin hafa verið mjög sein til lækkunar undanfarnar vikur og við höfum séð þessa þróun eiga sér stað fyrr á nágrannamörkuðum og við vorum bara nýlega með frétt fyrir helgi að bensín á Íslandi var það dýrasta í Evrópu. Í sjálfu sér fögnum að félögin séu eitthvað að taka við sér en þetta er eitthvað sem við áttum von á,“ segir Runólfur.

Verðið enn hátt og enn hærra á landsbyggðinni

Verð sé enn gríðarlega hátt, þar sem verð á lítrann sé allt að 20 krónum hærri en á meðalári, en undirliggjandi verðlækkun sé til staðar. Þegar litið er til landsbyggðarinnar er verð þó miklu hærra, á stöðvum Olís í Vestmannaeyjum, Stykkishólmi, Hrauneyjum og á Akranesi er verðið til að mynda rúmar 333 krónur á lítrann.

Verð er yfirleitt lægra á höfuðborgarsvæðinu en Runólfur segir þetta spurningu um álagsstefnu félaganna. Hann bendir þó á að félögin séu tilbúin að bjóða umtalsvert lægra verð, til að mynda á Akureyri.

„Einstaka sinnum sjáum við þetta gerast annars staðar á landsbyggðinni, það er svona smá viðleitni til lækkunar. Þannig það er alveg tækifæri til þess að lækka víðar og vera ekki að bjóða landsbyggðinni upp á þetta ofurverð,“ segir hann.

Hvað þróunina varðar almennt sé erfitt að segja, þar sem stríðið í Úkraínu spili meðal annars stór hlutverk.

„Það er engin sérstök bjartsýni en auðvitað eru eins og til dæmis Evrópusambandið að reyna að grípa til aðgerða með verðþaki og slíku, og víða hafa líka stjórnvöld í nágrannalöndum okkar, svona tímabundið alla vega, lækkað skatta á eldsneyti til að mæta auknum orkukostnaði sinna landsmanna. En að óbreyttu þá verður verð hátt,“ segir Runólfur.


Tengdar fréttir

FÍB telur að olíufélög skuldi verðlækkun

Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB telur að íslensku olíufélögin séu ekki að fylgja lækkuðu heimsmarkaðsverði á hráolíu á sama hátt og hækkunum á sömu hráolíu er gjarnan fylgt. Eins bendir FÍB á þá staðreynd á heimasíðu sinni að síðan hráolíuverð hefur lækkað um tæp 30% hefur eldsneytisverð lækkaðum 4,2% fyrir bensín og 4,7% fyrir dísel. Dönsk olíufélög hafa hins vegar lækkað bensín um 18,4% og dísel um 16,8% á sama tíma.

350 króna múrinn fallinn

Bensínlítrinn er nú víða kominn yfir 350 krónur í kjölfar umtalsverðra hækkana seinustu misseri. Samkvæmt gögnum frá Gasvaktinni reið Orkan á vaðið á mánudag og hækkaði verð á flestum stöðvum sínum um 11,5 krónur úr 343,4 krónum í 354,9 krónur á lítrann.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×