Tíunda mark Haaland dugði skammt gegn Aston Villa

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Skorar alltaf.
Skorar alltaf. vísir/Getty

Óvænt úrslit litu dagsins ljós í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta þegar Man City heimsótti Aston Villa.

Englandsmeistarar Man City hafa litið afar vel út í upphafi tímabils á meðan lærisveinar Steven Gerrard hjá Aston Villa hafa verið í verulegum vandræðum.

Norski markahrókurinn Erling Haaland hefur leitt sóknarlínu Man City með miklum myndarbrag og hann hélt uppteknum hætti í dag því hann kom City í forystu í upphafi síðari hálfleiks eftir markalausan fyrri hálfleik.

Tíunda mark kappans í deildinni sem er rétt nýhafin.

Þrátt fyrir að lenda undir gáfust lærisveinar Gerrard ekki upp því Jamaíkumaðurinn Leon Bailey náði að jafna metin með laglegu marki á 74.mínútu.

Ekki urðu mörkin fleiri og 1-1 jafntefli því niðurstaðan.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira