Umfjöllun: Frakk­land-Belgía 2-1 | Frakkar þriðja liðið sem kemst í átta liða úrslit

Hjörvar Ólafsson skrifar
Kadidiatou Diani fagnar markinu sem hún skoraði í kvöld. 
Kadidiatou Diani fagnar markinu sem hún skoraði í kvöld. 

Það voru Kadidiatou Diani og Griedge Mbock Bathy sem skoruðu mörk franska liðsins í þessum leik en Janice Cayman jafnaði metin fyrir Belga í leiknum. 

Frakkar urðu fyrir áfalli í leiknum en Marie-Antoinette Katoto, framherji liðsins, fór meidd af velli en hún virtist hafa meiðst á hné. 

Frakkland er á toppi riðilsins með fullt hús stiga og er líkt og Þýskaland og England búið að tryggja sér farseðilinn í útsláttakeppni mótsins. 

Ísland er í öðru sæti riðilsins með tvö stig og Belgía og Ítalía hafa eitt stig hvort lið. Íslenska liðið mætir því franska í lokaumferð riðilsins á mánudaginn kemur en Belgía og Ítalía leiða saman hesta sína. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira