Fótbolti

Ferðin á EM í Þýskalandi gæti hafist í Haífa í kvöld

Sindri Sverrisson skrifar
Hörður Björgvin Magnússon sneri aftur í íslenska landsliðið í mars eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Hann var í hópnum sem fór á EM 2016 og HM 2018.
Hörður Björgvin Magnússon sneri aftur í íslenska landsliðið í mars eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Hann var í hópnum sem fór á EM 2016 og HM 2018. Getty/Juan Manuel Serrano

Hið unga íslenska A-landslið karla í fótbolta gæti með góðum úrslitum í Ísrael í kvöld stigið fyrsta skrefið í átt að því að spila á stórmóti eftir tvö ár; Evrópumótinu í Þýskalandi.

Ísland og Ísrael eru saman í riðli í Þjóðadeildinni og sú keppni gefur, rétt eins og þegar Ísland fór í umspil fyrir EM 2020, síðustu lausu sætin á EM 2024. Keppnin ræður því einnig í hvað styrkleikaflokki Ísland verður í fyrir undankeppni EM.

Það hvernig Þjóðadeildin og undankeppni EM spila saman er kannski svolítið flókið en í stuttu máli er hægt að segja að ef Ísland endar fyrir ofan Ísrael og Albaníu í Þjóðadeildinni tryggir liðið sér að lágmarki sæti í fjögurra liða umspili um sæti á EM.

Það umspil fer fram í mars 2024, þremur mánuðum áður en flautað verður til leiks í Þýskalandi, en liðin sem komast beint á EM í gegnum undankeppnina á næsta ári munu vitaskuld ekki þurfa á því umspili að halda.

Jafnvel þó að Ísland endi í 2. eða 3. sæti síns riðils í Þjóðadeildinni gæti bara það að vera í B-deild keppninnar dugað Íslandi til að fá sæti í EM-umspilinu. Það má því segja að Þjóðadeildin veiti varaleið inn á EM – varaleið sem Ísland var svo nálægt því að nýta fyrir Evrópumótið sem fram fór í fyrra.

Ísland leikur tvo leiki við Ísrael og einn við Albaníu núna í júní og er fyrsti leikurinn í Haífa í Ísrael í kvöld. Síðasti leikur Íslands er svo útileikur gegn Albaníu í september. Miðað við stöðu liðanna á heimslista ætti að vera raunhæft markmið fyrir Ísland að enda fyrir ofan þessi tvö lið.

Leikir Íslands í júní

  • Ísrael - Ísland fimmtudaginn 2. júní kl. 18:45
  • Ísland - Albanía mánudaginn 6. júní kl. 18:45
  • San Marínó - Ísland, vináttulandsleikur, fimmtudaginn 9. júní kl. 18:45
  • Ísland - Ísrael mánudaginn 13. júní 18:45

Gæfi liðinu mikið að vinna riðilinn og engin hætta á falli

Það gæfi íslenska liðinu mikið að vinna riðilinn; öruggt sæti í umspili EM 2024 ef þess þarf, sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar 2024-25, og loks sæti í 2. styrkleikaflokki fyrir dráttinn í undankeppni EM 2024 (10 lið fara í efsta flokk, 10 í 2. flokk og svo framvegis) sem væri svo sannarlega dýrmætt.

Ísland, Ísrael og Albanía eru saman í riðli tvö af fjórum, í B-deild Þjóðadeildarinnar. Sextán bestu lið Evrópu eru í A-deildinni, sextán í B-deild, sextán í C-deild og sjö í tveimur riðlum í D-deild, lökustu deildinni.

Rússland átti að vera fjórða liðið í riðli Íslands en var sparkað út vegna innrásarinnar í Úkraínu. Þar með getur Ísland ekki fallið niður í C-deild því það verður hlutskipti Rússa.

Riðlakeppni Þjóðadeildarinnar lýkur í september og hjá bestu liðum Evrópu tekur þá við undirbúningur fyrir HM í Katar sem fram fer í nóvember og desember.

Á næsta ári, frá mars og fram í nóvember, verður svo öll undankeppni EM leikin í fimm landsleikjagluggum. Þar verður leikið í 5-6 liða riðlum og dregið verður í riðlana 9. október, og mun lokastaðan í Þjóðadeildinni ráða því í hvaða styrkleikaflokka lið raðast fyrir dráttinn. Ísland þarf að vinna sinn riðil til að komast í 2. styrkleikaflokk en fer annars í 3. flokk.

Í undankeppni EM komast svo tvö efstu liðin beint á EM, rétt eins og síðast þegar Frakkland og Tyrkland komust áfram úr riðli Íslands eftir harða baráttu. Ísland sat þá eftir í 3. sæti en komst í fjögurra liða umspil vegna stöðu sinnar í Þjóðadeildinni, vann þar Rúmeníu en tapaði úrslitaleik gegn Ungverjalandi.

Sætið í B-deildinni gæti dugað til umspils

Það ræðst svo endanlega af því hvaða lið komast beint á EM í gegnum undankeppnina hvaða lið fara í umspil um þrjú síðustu lausu sætin á EM.

Það ættu að vera liðin fjögur sem vinna sinn riðil í A-deild, liðin fjögur sem vinna sinn riðil í B-deild, og loks liðin fjögur sem vinna sinn riðil í C-deild.

Ef eitthvert þessara liða verður búið að vinna sér sæti á EM, sem ljóst er að mun gerast, fær besta liðið úr D-riðli að koma inn í umspilið í staðinn, og svo þau lið sem enduðu efst samkvæmt heildarstöðu Þjóðadeildarinnar en hafa ekki þegar unnið sér sæti á EM. Þess vegna gæti vera Íslands í B-deild ein og sér á endanum mögulega dugað til að liðið fengi sæti í EM-umspilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×