Umfjöllun: Brighton - Man. Utd 4-0 | Algjört hrun hjá Manchester United gegn Brighton

Hjörvar Ólafsson skrifar
Cristiano Ronaldo komst ekki á blað hjá Manchester United gegn Brighton í dag Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo komst ekki á blað hjá Manchester United gegn Brighton í dag Vísir/Getty

Það voru Moisés Caicedo Corozo, Cucurella, Pascal Groß og Leandro Trossard sem skoruðu mörk Brighton í leiknum. 

Hvorugt liðið hafði að miklu að keppa í þessum leik en Brighton siglir lygnan sjó og Manchester United hefur kastað frá sér möguleikanum að spila í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. 

Þetta var næstsíðasti leikur þar sem Ralf Rangnick heldur um stjórnartaumana hjá Manchester United en Erik ten Hag tekur við keflinu af honum í sumar. 

Leikmenn Manchester United virðast ekki geta beðið eftir því að komast í sumarfrí og ljóst að það verður verk að vinna hjá hollenska knattspyrnustjóranum að færa Manchester United nær toppliðum deildarinnar.   

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira