Tíska og hönnun

Sterkur heimamarkaður lykilatriði fyrir hönnunargeirann

Helgi Ómarsson skrifar
Rammagerðin Bjarney Harðardóttir
Aðsend

Bjarney Harðardóttir er leiðandi afl innan íslenska hönnunargeirans. Hún er bæði eigandi Rammagerðarinnar og 66°Norður og hefur verið frumkvöðull að koma íslenskri hönnun á framfæri bæði hér á landi og erlendis.

Hér á landi spilar verslunin Rammagerðin mikilvægt hlutverk innan hönnunargeirans en um er að ræða stóran söluvettvang fyrir íslenska hönnun og framleiðslu á Íslandi.

Á HönnunarMars í ár munu Hlín Reykdal kynna línuna sína Blóm í versluninni í Kringlunni, myndlistarkonan Sísí Ingólfsdóttir bíður fólki í saumaklúbb í versluninni á Skólavörðustíg og í Hörpunni verður til sýnis draumkennt matarborð í samstarfi við hóp íslenskra hönnuða. 

Íslensk hönnun einstök

Í samtali við Lífið segir Bjarney að ástríða hennar á íslenskri hönnun endurspeglast í gæðunum.

„Mér hefur vanta upp á stuðning við hönnunargeirann á Íslandi og ég hef unnið að því með 66°Norður og Rammagerðinni að styðja við íslenska hönnun. 

Það sem einkennir íslenska hönnun að hún er sjaldan fjöldaframleitt, oft handgerð og einstök.

Það er mikil saga og hugsun á bak við vöruna. Þú átt því eitthvað sem sést ekki alls staðar og gerir því heimili þitt meira spennandi að mínu mati. Ég hef mikla trú á sérstöðu íslenskrar hönnunar en hún er klárlega samkeppnishæf á alþjóða vettvangi," segir Bjarney.

Leiðandi að koma íslenskri hönnun á framfæri

Stofnað árið 1940 en þá var áherslan á gjafavöru úr íslenskri ull og íslensku keramiki. 

„Verslunin hefur breyst mikið síðustu ár og í takt við hönnunarsamfélagið á Íslandi og endurspeglar þá grósku sem hefur verið þar.“

Rammagerðin hefur verið leiðandi á Íslandi að koma íslensku handverki og hönnun á framfæri í verslunum sínum. 

„Megin áherslur okkar í dag er að styðja við vöxt og nýsköpun á sviði hönnunar og handverks. Við höfum verið að vinna með fjölmörgum íslenskum hönnuðum í gegnum tíðina og það er mikilvægt að það sé vettvangur fyrir hönnuði að koma sinni vöru á framfæri. 

Okkar markmið er að Rammagerðin komi upp í huga neytenda þegar þeir hugsa um íslenska hönnun.“

Sterkur heimamarkaður lykilatriði fyrir hönnunargeirann

Aðspurð hvort Bjarney telur mikilvægt að íslenskir neytendur styðji við íslenska vöruhönnuðir segir hún að það sé lykilatriði að það sé sterkur heimamarkaður til að hönnunargeirinn hér á landi geti dafnað og vaxið. 

„Ég tel að Hönnunarmars hafi náð að vekja athygli á íslenskri hönnun og gæðum hennar en til að lyfta geiranum upp á hærri stall þannig að geirinn verði sjálfbær þarf íslenskt atvinnulíf að vakna til lífsins og styðja við íslenska hönnun. 

Byggingargeirinn og í raun allir atvinnugeirar geta nýtt miklu betur íslenska hönnun. 

Hugvit og hönnun er óþrjótandi auðlindir og við þurfum að horfa til skapandi greina sem nýju hagvaxtarsprotana það er ekki hægt að byggja stöðugan hagvöxt óháð fiskistofnum eða stóriðju.“ segir Bjarney að lokum.


HönnunarMars 2022 fer fram 4. til 8. maí. Alla dagskránna má finna á vef hátíðarinnar

Frítt er inn á alla viðburði fyrir utan DesignTalks ráðstefnuna í Hörpu. HönnunarMars er opinn öllum og dagskráin er fjölbreytt svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.  

Hér má finna alla okkar umfjöllun um HönnunarMars 2022






Fleiri fréttir

Sjá meira


×