Tónlist

Biður foreldra sína fyrirgefningar í nýju lagi

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Júlí Heiðar var að senda frá sér lagið Brenndur og segir það meðal annars afsökunarbeiðni til foreldra sinna.
Júlí Heiðar var að senda frá sér lagið Brenndur og segir það meðal annars afsökunarbeiðni til foreldra sinna. Ljósmynd: Óli Már, Grafík: Þura Stína

Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar var að senda frá sér lagið Brenndur, sem fylgir á eftir hinu gífurlega vinsæla ástarlagi Ástin heldur vöku. Júlí frumflutti lagið í gær í beinni hjá Gústa B í útvarpsþættinum Veisla á FM957. Blaðamaður tók púlsinn á tónlistarmanninum og fékk að heyra söguna á bak við lagið.

„Lagið Brenndur er sprottið út frá minni reynslu og þá sérstaklega minni æsku.

 Lagið fjallar um upplifun mína af einelti þegar ég var barn og samskipti mín við mína nánustu fjölskyldu og vini þegar ég er um tvítugt,“ 

segir Júlí Heiðar.

Hann segist hafa átt virkilega góða æsku, uppeldi og foreldra og fyrir vikið taldi hann sig hafa verið nokkuð sterkan einstakling. Hins vegar átti hann ekki auðvelda skólagöngu.

„Ég varð fyrir miklu einelti í grunnskóla og þegar maður verður fyrir ítrekuðu aðkasti þá er það bara þannig að það fara að myndast sprungur sem erfitt er að fylla upp í án aðstoðar, þá sérstaklega þegar maður er ungur.“

Nýja lag Júlí Heiðar sprettur úr erfiðri reynslu hans í grunnskóla.Óli Már

Brotin sjálfsmynd úr æsku

Í þessu lagi lítur Júlí til baka og fer yfir farinn veg.

„Mín mesta eftirsjá snýr klárlega að því hvernig ég kom fram við foreldra mína og systkini þegar ég var um tvítugt. Á þessum tíma frá 19 ára til 23 ára hefði ég farið út af sporinu sem ég tengi aðeins við brotna sjálfsmynd og áhrif eineltis úr minni æsku. Þetta hafði mikil áhrif á fjölskylduna mína en það er eitthvað sem ég gat ekki skilið fyrr en ég varð foreldri sjálfur. 

Svo lagið er einhverskonar afsökunarbeiðni til þeirra og vitnar í þá sjálfsvinnu sem ég hef þurft að fara í vegna brotinnar sjálfsmyndar frá æsku.“

Ákveðið ferðalag að skanna ævi sína

Júlí segir að sjálfsvinnan hafi skilað honum betri líðan.

„Í dag hef ég unnið að miklu leyti úr eineltinu og tel mig vera á góðum stað í lífinu, hamingjusamur, góður faðir og í frábæru sambandi. Það er ákveðið ferðalag að skanna ævi sína, sem spannar þó ekki nema 31 ár, skoða hvaðan maður kemur, hvert maður fór, hvar maður er og hvert maður stefnir í lífinu. 

Mér finnst gott að skrifa um þessa hluti og er það mín leið til að skilja mig betur og þroskast.“
Júlí Heiðar segir sjálfsvinnuna hafa gert magnaða hluti fyrir sig.Óli Már/Þura Stína

Textinn kom auðveldlega fram

Júlí þurfti ekki að leita langt eftir innblæstri og var ekki lengi að semja lagið.

„Ætli þessar pælingar hafi ekki alltaf verið mjög ofarlega í mínum huga. 

Textinn, líkt og textinn við Ástin heldur vöku, kom mjög auðveldlega til mín og varð til á nokkrum mínútum þegar ég sat með sonum mínum að horfa á sjónvarpið.

Fannar Freyr Magnússon tók svo við laginu þegar ég var búinn að leggja píanóið og sönginn. Ég vissi hvert ég vildi fara með lagið en Fannar tók það síðan á næsta stig og smíðaði í kringum það hljóðheim sem var fullkominn til þess að skila sögunni og tilfinningunum.

Eva Hauksdóttir kom síðan að laginu, útsetti og spilaði inn fiðlur en það gerði hún í veikindaleyfi með Covid, stödd í íbúð sinni í Brussel.“

Ávinningur fyrir alla að tala um sína líðan

Að lokum spurði blaðamaður hvernig það væri að senda svona persónulega hluti frá sér í gegnum tónlistina.

„Tilfinningar, líðan og upplifanir eiga ekki að vera skömm og ég held að það sé bara ávinningur fyrir alla ef fólk talar um sína líðan. Mér finnst gott að segja mína sögu og tala um mínar tilfinningar í tónlistinni minni og frábært ef einhver tengir við það.“

Lagið er annar síngúll af væntanlegri plötu í haust og má gera ráð fyrir því að platan í heild sinni verði á persónulegu nótunum líkt og Brenndur og Ástin heldur vöku.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×