Arsenal heggur stórt skarð í Meistaradeildarvonir Manchester United

Bruno Fernandes trúir ekki sínum eigin augum eftir vítaklúðrið. Leikmenn Arsenal fagna. 
Bruno Fernandes trúir ekki sínum eigin augum eftir vítaklúðrið. Leikmenn Arsenal fagna.  Getty Images

Það stefnir allt í að Erik Ten Hag verði ekki með Manchester United í Meistaradeildinni á næsta tímabili eftir að liðið tapaði gegn Arsenal á Emirates vellinum, 3-1.

Nuno Tavares kom Arsenal yfir strax á þriðju mínútu þegar hann var réttur maður á réttum stað á fjærstöng til að stýra frákastinu í netið.

Eddie Nketiah virtist hafa komið Arsenal í tveggja marka forystu þegar hann kom boltanum í netið á 30. mínútu en þegar markið var skoðað í VARsjánni þá kom í ljós að Nketiah var í rangstöðu þegar boltinn barst til hans frá Saka. Á meðan rangstaðan var skoðuð sá myndbandsdómarinn að brotið hafi verið á Saka inn í vítateig áður en boltinn fór á Nketiah. Eftir smá japl jaml og fuður var Craig Pawson, dómari leiksins, sendur á hliðarlínuna til að skoða atvikið sjálfur og stuttu síðar var vítaspyrna dæmd. Saka tók spyrnuna og skoraði, 2-0 fyrir Arsenal.

Tveimur mínútum síðar, á 34. mínútu, minnkar Cristiano Ronaldo forystu Arsenal með marki eftir fyrirgjöf Nemanja Matic. Hundraðasta mark Ronaldo í ensku úrvalsdeildinni.

Á 57. mínútu fékk Manchester United kjörið tækifæri til að jafna leikinn þegar vítaspyrna var dæmd eftir að Tavares handlék boltann. Ronaldo fór ekki á punktinn heldur var það Bruno Fernandes sem tók á sig ábyrgðina að taka spyrnuna. Það fór ekki betur en svo að Bruno setti boltann í stöngina og aftur fyrir endamörk.

Vont var verra fyrir United þegar Granit Xhaka skorar fjórða og síðasta mark leiksins með þrumuskoti fyrir utan vítateig á 70 mínútu. Lokatölur voru því 3-1 fyrir Arsenal.

Arsenal er með sigrinum komið upp í fjórða sæti deildarinnar með 60 stig þegar liðið er búið að leika 33 leiki, þremur stigum á undan Tottenham sem á einn leik til góða á Arsenal. Manchester United er hins vegar í sjötta sæti með 54 stig eftir 34 leiki. Það mun því reynast erfitt fyrir Manchester United að gera atlögu af fjórða sætinu í síðustu leikjum tímabilsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira