Menning

Afhjúpuðu styttu af þríeykinu

Eiður Þór Árnason og Kristín Ólafsdóttir skrifa
Eitt af mörgum fjölmörgum eftirminnilegum augnablikum þríeykisins í faraldrinum.
Eitt af mörgum fjölmörgum eftirminnilegum augnablikum þríeykisins í faraldrinum. VÍSIR/EGILL

Stytta af þríeykinu svokallaða, Ölmu Möller landlækni, Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni og Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni verður afhjúpuð við hátíðlega athöfn við Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð í Reykjavík í dag. Afhjúpunin hefst klukkan 10 og er almenningi boðið að vera viðstaddur. Fyrir þá sem ekki komast verður beint streymi á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Uppfært: Um var að ræða aprílgabb á vegum fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar og fór því engin raunveruleg afhjúpun fram.  

Staðsetning styttunnar er táknræn en það var í Skógarhlíð sem almannavarnir samhæfðu viðbragð sitt við Covid-19 faraldrinum, héldu óteljandi fundi og drukku enn fleiri kaffibolla. Þá er heilbrigðisráðuneytið staðsett þar steinsnar frá. 

Afhjúpun styttunnar markar einnig ákveðin tímamót í baráttunni við kórónuveiruna en í vikunni létu síðustu starfsmenn smitrakningarteymis almannavarna af störfum.

Kaffi, kleinur og gítarinn ekki langt undan

Athöfnin hefst með ávarpi heilbrigðisráðherra klukkan 10 og þá flytur Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir einnig stutta tölu. Margrét Rut Eddudóttir, listakona sem hannaði styttuna, mun loks svipta hulunni af sköpunarverki sínu. Að lokinni afhjúpuninni verður gestum boðið upp á kaffi og kleinur í anddyri Björgunarmiðstöðvarinnar – og þá útilokar Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn ekki að Þórólfur grípi í gítarinn fyrir viðstadda.

Uppfært klukkan 10.45: Útsendingunni er nú lokið og er hægt að horfa á hana í spilaranum hér fyrir neðan. 

„Þetta er bara ótrúlegur heiður, að fá styttu af sér eftir þetta og eftir þennan listamann er náttúrulega meiriháttar heiður,“ segir Víðir. 

„Maður hugsar bara um allt fólkið sem var með manni í þessu og manni finnst verst að það sé ekki hægt að hafa fleiri með.“

Svo það eru ákveðin vonbrigði að það séu ekki fleiri en þið þrjú?

„Jájá, við vorum kannski í frontinum á þessu en þetta var samstarfsverkefni allrar þjóðarinnar í sjálfu sér. Kannski er þetta bara ágætis táknmynd fyrir það að við komum fram fyrir hönd þjóðarinnar.“

Margrét Rut Eddudóttir og Haraldur Þorleifsson.Aðsend

Vilja heiðra þríeykið

Styttan er gjöf frá hjónunum Margréti Rut Eddudóttur listakonu og Haraldi Þorleifssyni, stofnanda Ueno. Haraldur segir að með þessu vilji þau heiðra þríeykið og sýna þakklæti þjóðarinnar í verki. 

„Síðustu tvö ár hafa verið ótrúlegur tími sem munu án efa fá sitt pláss í sögubókum framtíðarinnar. Þau þrjú hafa hjálpað okkur að vinna í gegnum þetta ferli með einlægni og staðfestu sem þjóðin hefur getað fylkt sér á bakvið. Síðan eru þau líka flest frekar myndarleg,“ segir Haraldur í samtali við fréttastofu.

Að lokum vill Margrét hrósa skipulagsyfirvöldum í Reykjavík og Listasafni Reykjavíkur fyrir liðlegheit og skilvirka afgreiðslu málsins en listasafnið mun hafa umsjón með listaverkunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×