Menning

Bóksölulisti uppgjör: Glæpa­sagna­drottningin Yrsa hrifsar til sín krúnuna

Jakob Bjarnar skrifar
Yrsa Sigurðardóttir trónir á toppi aðallistans nú þegar bóksala ársins 2021 hefur verið gerð upp. 
Yrsa Sigurðardóttir trónir á toppi aðallistans nú þegar bóksala ársins 2021 hefur verið gerð upp.  Lilja Birgisdóttir

Fyrir liggur uppgjör um bóksölu á síðasta ári. Glæpasagnadrottningin Yrsa Sigurðardóttir er á toppi lista.

Vísir birtir nú uppgjörslista sem tekur til jólabókavertíðarinnar 2021 og ársins í heild. Listinn er frá Fíbút – Félagi íslenskra bókaútgefenda – og gefur glögga mynd af bóksölu ársins sem var að líða. Rúmlega 80 sölustaðir koma að gerð hans sem eru: A4, Bóksala stúdenta, Bónus, Forlagið, Hagkaup, Heimkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Nexus, Salka - bókabúð og Samkaupsverslanir um land allt auk nokkurra einstakra sérvöruverslana. Þetta er sem sagt Listinn, með stóru l-i og greini.

Þjóðin sýnir skáldskapnum tryggð

„Í heildina sýnist mér sala íslenskra bóka fyrir jól hafa verið góð, mín tilfinning er sú aða hún hafi verið alveg á pari við árið í fyrra, sem var mjög gott ár. Munurinn í ár er hins vegar sá að útgáfan var meiri og salan dreifist því á fleiri titla og meðalsala á titil því líklega aðeins lægri,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Fíbút í samtali við Vísi spurð um hvernig hún meti árið að teknu tilliti til bóksölu.

Líkt og í fyrra, þá eru íslenskar skáldsögur í fjórum efstu sætunum yfir mest seldu bækur ársins. Árið 2020 röðuðu Ólafur Jóhann Ólafsson, Arnaldur Indriðason, Yrsa og Ragnar Jónasson sér í efstu sætin, eitt skáldverk og þrjár spennusögur. Nú hafa leikar hins vegar jafnast þar sem bæði Arnaldur og Hallgrímur Helgason eru með skáldverk.

Bryndís Loftsdóttir hjá Fíbút er ekki til í að kaupa þá kenningu að skáldsagan eigi undir högg að sækja, nema síður sé.

„Þjóðin heldur áfram tryggð við íslensk skáldverk,“ segir Bryndís ákveðin spurð hvort íslenska skáldsagan sé (nokkuð) á hverfanda hveli? 

Svo hátimbraðri líkingunni sé haldið til streitu hrifsar glæpasagnadrottningin Yrsa nú til sín krúnuna en Arnaldur hefur verið þéttur fyrir í hásætinu á toppi bóksölulistans mörg undanfarin ár. Til að allrar sanngirni sé gætt þá brá Arnaldur nú frá vananum, sendi ekki frá sér glæpasögu þetta árið heldur sögulega skáldsögu. Í því ljósi má segja að árangur hans sé glæsilegur og lesendur sýni honum tryggð. En glæpasagan nýtur eftir sem áður mikilla vinsælda meðal íslenskra lesenda, það sýnir bóksölulistinn með óyggjandi hætti.

Barnabækur í vörn

Útgefendur gefa ekki upp upplagstölur en það segir ef til vill sína sögu að það munar tæplega fjórum prósentum á sölu bókanna í fyrsta og öðru sæti. Sá munur eykst þegar neðar dregur.

Þannig er fjöldi seldra eintaka á bakvið titilinn í 20. sæti innan við 30 prósent af heildarfjölda seldra eintaka af bók Yrsu. 

Þetta þýðir, ef við gefum okkur að Yrsa hafi selt 10 þúsund eintök af sinni bók, sem er þægileg tala, þá seldi Bókafélagið tæp þrjú þúsund eintök af Verstu foreldrum í heimi eftir David Walliams sem er í 20. sæti á aðallistanum.

En það má lesa sitthvað í listana. Þó svo að bæði Birgitta Haukdal og Gunnar Helgason eigi þar sitthvora bókina á lista má greina að barnabækur séu að gefa eftir en fyrir um sex árum voru barnabókahöfundar farnir að ógna glæpasagnahöfundum svo um munaði í baráttunni um efstu sætin. Sú er ekki staðan núna og mætti ef til vill leggja út af því um þjóðfélagsástandið almennt; að sjálfssprottinn bóklestraráhugi íslenskra ungmenna sé hverfandi? Þeir teknir til við að lesa á ensku og séu meira í tölvunni?

Betri bíla, meiri pening

Hallgrímur Helgason má vel við una, hann er í fjórða sæti með vandaða skáldsögu sína sem er önnur í Siglufjarðartrílógíu sinni. Hann er, auk Arnaldar, tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna; verðlaun sem bókaútgefendur efna til einkum með það fyrir augum að vekja athygli á bókmenntum. Fleiri tilnefndir eru nú ekki á aðallistanum.

Hallgrímur Helgason er helsti útvörður íslensku skáldsögunnar. Bók hans Sextíu kíló af kjaftshöggum hefur heldur betur átt upp á pallborðið hjá íslenskum bókakaupendum.

Bjarni Fritzson og Óttar Sveinsson eru fastagestir á listanum, sem og Stefán Máni sem heldur sínu. Nýliðar á lista eru svo Guðjón Ragnar Jónasson með bók um Guðna Ágústsson, í 8. sæti og svo eru bækur sem fjalla um fjárfestingar annars vegar (Fjárfestingar) og svo bíla hins vegar (Bílamenning: Akstursgleði liðinnar aldar í máli og myndum) – hvað svo sem það segir um þjóðina: „Betri bíla, yngri konur, eldra viskí, meiri pening,“ eins og Rúnar Júlíusson heitinn söng fyrir margt löngu?

Óvænt á aðallista og nýliðar ársins

„Mér fannst Guðni Ágústsson vera óvæntasti smellurinn en í raun er Guðni einfaldlega afskaplega vel þokkaður og vinsæll höfundur og mætti að ósekju senda frá sér mun fleiri bækur. Skemmtisögur hans af sjálfum sér og fleirum, Guðni - léttur í lund, sem kom út árið 2013 lenti til dæmis í efsta sæti ævisagnalistans það árið og í fimmta sæti aðallistans. Efstu sæti Bóksölulistans eru Guðna því ekki framandi,“ segir Bryndís spurð um hvað komi helst á óvart. Hún vill með öðrum orðum meina að velgengni Guðna komi ekki á óvart þegar allt kemur til alls:

Aníta Rut og Rósa Kristinsdóttir eru ásamt Kristínu Hildi Ragnarsdóttur nýliðar ársins.Vísir/Brennslan

„Því vil ég nefna þær Anítu Rut Hilmarsdóttur, Kristínu Hildi Ragnarsdóttur og Rósu Kristinsdóttur með bók sína Fjárfestingar sem „svarta fola ársins“ eða óvæntasta smellinn. Það má í raun hengja á þær borða sem nýliðar ársins í leiðinni. Hvert bók þeirra leiðir þjóðina á þessu nýja ári er mér ekki alveg ljóst enda verð ég að viðurkenna að hafa ekki kynnt mér hana eins og ég gjarnan hefði þó hug á.“

Samdráttur frá metárinu í fyrra

Örlítil rannsóknarvinna leiðir í ljós að heildarsala íslenskra skáldverka í nóvember og desember var heldur minni en árið 2020, sem reyndar var algjört metár. Samdrátturinn gæti numið eitthvað á milli 10-15 prósentum, að sögn Bryndísar. 

„Sé sala íslenskra skáldverka fyrir jól hins vegar borin saman við árið 2019 þá var árið í fyrra 3-4 prósentum betra.“

Salan rokkar alltaf eitthvað á milli flokka. Þannig voru þýðingar til dæmis aðeins að sækja í sig veðrið miðað við jólasölu fyrri ára og í heild var salan áþekk árinu 2020. Bryndís segir að þegar útgáfan er svona mikil sé raunin sú að lesendur fá meira úrval, salan dreifist á fleiri titla og höfundar bera minna úr býtum. Væntanlega hefur styrkur til útgefenda haft það að segja að útgáfan er meiri en áður hefur verið, dreifðari og ekki eins háð markaði.

„Leitin að hinu gullna jafnvægi er þrotlaus,“ segir Bryndís spekingsleg á svip.


Mest seldu bækur ársins 2021

1. Lok, lok og læs - Yrsa Sigurðardóttir

2. Sigurverkið - Arnaldur Indriðason

3. Úti - Ragnar Jónasson

4. Sextíu kíló af kjaftshöggum - Hallgrímur Helgason

5. Lára bakar - Birgitta Haukdal

6. Orri óstöðvandi - Kapphaupið um silfur Egils - Bjarni Fritzson

7. Útkall : Í auga fellibylsins - Óttar Sveinsson

8. Guðni á ferð og flugi - Guðjón Ragnar Jónasson

9. Alexander Daníel Hermann Dawidsson : Bannað að eyðileggja - Gunnar Helgason

10. Lára lærir á hljóðfæri - Birgitta Haukdal

11. Fjárfestingar - Aníta Rut Hilmarsdóttir, Kristín Hildur Ragnarsdóttir og Rósa Kristinsdóttir

12. Þín eigin ráðgáta - Ævar Þór Benediktsson

13. Fagurt galaði fuglinn sá - Helgi Jónsson, Anna M. Marinósdóttir og Jón B. Hlíðberg

14. Rætur : Á æskuslóðum minninga og mótunar - Ólafur Ragnar Grímsson

15. Læknirinn í englaverksmiðjunn - Ásdís Halla Bragadóttir

16. Horfnar - Stefán Máni

17. Bílamenning : Akstursgleði liðinnar aldar í máli og myndum - Örn Sigurðsson

18. Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding

19. Palli Playstation - Gunnar Helgason

20. Verstu foreldrar í heimi - David Walliams


Mest seldu barna- og ungmennabækurnar

1. Lára bakar - Birgitta Haukdal

2. Orri óstöðvandi - Kapphaupið um silfur Egils - Bjarni Fritzson

3. Alexander Daníel Hermann Dawidsson : Bannað að eyðileggja - Gunnar Helgason

4. Lára lærir á hljóðfæri - Birgitta Haukdal

5. Þín eigin ráðgáta - Ævar Þór Benediktsson

6. Fagurt galaði fuglinn sá - Helgi Jónsson, Anna M. Marinósdóttir og Jón B. Hlíðberg

7. Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding

8. Palli Playstation - Gunnar Helgason

9. Verstu foreldrar í heimi - David Walliams

10. Salka: Tölvuheimurinn - Bjarni Fritzson


Mest seldu skáldverkin

1. Lok, lok og læs - Yrsa Sigurðardóttir

2. Sigurverkið - Arnaldur Indriðason

3. Úti - Ragnar Jónasson

4. Sextíu kíló af kjaftshöggum - Hallgrímur Helgason

5. Horfnar - Stefán Máni

6. Allir fuglar fljúga í ljósið - Auður Jónsdóttir

7. Bréfið - Kathryn Hughes

8. Merking - Fríða Ísberg

9. Þú sérð mig ekki - Eva Björg Ægisdóttir

10. Náhvít jörð - Lilja Sigurðardóttir


Mest seldu fræði- og handbækurnar

1. Útkall : Í auga fellibylsins - Óttar Sveinsson

2. Guðni á ferð og flugi - Guðjón Ragnar Jónasson

3. Fjárfestingar - Aníta Rut Hilmarsdóttir, Kristín Hildur Ragnarsdóttir og Rósa Kristinsdóttir

4. Bílamenning : Akstursgleði liðinnar aldar í máli og myndum - Örn Sigurðsson

5. Heima hjá lækninum í eldhúsinu - Ragnar Freyr Ingvarsson

6. Bakað með Evu Laufey - Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

7. Undir 1000 kr. fyrir tvo - Áslaug Björg Harðardóttir

8. Prjón er snilld - Sjöfn Kristjánsdóttir

9. Bærinn brennur - Þórunn Jarla Valdimarsdóttir

10. Skipulagsdagbók 2022 - Sólrún Diego


Mest seldu ævisögurnar

1. Rætur : Á æskuslóðum minninga og mótunar - Ólafur Ragnar Grímsson

2. Læknirinn í englaverksmiðjunn - Ásdís Halla Bragadóttir

3. 11. 000 volt : Þroskasaga Guðmundar Felix - Erla Hlynsdóttir

4. Gunni Þórðar : Lífssaga - Ómar Valdimarsson

5. Ilmreyr : Móðurminning - Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

6. Minn hlátur er sorg - ævisaga Ástu Sigurðardóttur - Friðrika Benónýsdóttir

7. Sigurður Þórarinsson - mynd af manni I-II - Sigrún Helgadóttir

8. Markús : Á flótta í 40 ár : Öðruvísi Íslandssaga - Jón Hjaltason

9. Úr heljargreipum : saga Baldurs Freys - Baldur Freyr Einarsson

10. Hákarla-Jörundur : ævisaga Jörundar Jónssonar hákarlaformanns og útvegsbónda í Hrísey


Mest seldu ljóðabækurnar

1. Jóðl - Bragi Valdimar Skúlason

2. Bestu gamanvísurnar - Ragnar Ingi Aðalsteinsson

3. Menn sem elska menn - Haukur Ingvarsson

4. Ekki var það illa meint - Hjálmar Freysteinsson

5. Ljóðasafn Vilborgar - Vilborg Dagbjartsdóttir

6. Orð ekkert nema orð - Bubbi Morthens

7. Ég brotna 100 % niður - Eydís Blöndal

8. Kona fer í gönguferð - Hanna Óladóttir

9. Meðal hvítra skýja - Íslensk þýðing ljóða úr kínversku - Hjörleifur Sveinbjörnsson þýddi

10. Ætli Adólf hafi grátið Evu sína? - Friðvin Berndsen


Tengdar fréttir

Nýr bóksölulisti: Yrsa þjarmar að Arnaldi

Æsast nú heldur betur leikar í jólabókaflóðinu hvar salan er helsta mælistikan. Bóksölulisti vikunnar leiðir í ljós að Sigurverk Arnaldar heldur toppsætinu eins og var fyrir viku.

Bókaþjóðin elskar sinn Arnald

Glæpasagnakóngurinn hefur komið sér makindalega fyrir á toppi bóksölulistans þó ekki sé það reifari sem hann sendir frá sér núna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×