En samkvæmt heimildum Vísis er mjótt er á mununum á milli hans og Yrsu Sigurðardóttur. Það verður forvitnilegt að sjá hvort hann haldi stöðu sinni sem mest seldi höfundurinn og takist að leiða lesendur sína frá spennusagnafrominu yfir í bókmenntirnar, en hann er með sögulega skáldsögu að þessu sinni. Eða hvort Yrsa, og þar með glæpasagan, nái yfirhöndinni á lokametrunum.
Hástökkvari vikunnar verður að teljast gamla brýnið Guðni Ágústsson. Sem farið hefur mikinn með sinni sérstæðu röddu og áherslum í útvarpsauglýsingum. Hann náði ekki inn á topp 20 listann fyrir viku en stekkur nú rakleiðis upp í 8. sæti aðallistans. Hann blandar sér þar með í keppnina um svarta folann en áður hefur verið nefnt til sögunnar þær Anítu, Kristínu og Rósu með bók sína Fjárfestingar. Sú bók fellur nú úr 8. sæti og niður í 16. sæti. Enn er þetta að teikna sig upp en mál manna er að bóksala sé seinni á ferð en í fyrra.

Annar hástökkvari er Bjarni Fritzson með nýja bók um Orra óstöðvandi. Bjarni er gömul kempa í bóksölunni, hefur verið áberandi á bóksölulistum með sínar bækur á undanförnum árum. Orri var svolítið seinn til landsins, líkt og margar aðrar bækur í ár vegna pappírsskorts á heimsvísu. Svo virðist þó sem flestir titlar nái höfn í tæka tíð fyrir aftansöng en líklega verður minna um endurprentanir en oft áður og því gæti sú staða komið upp að einhverjir titlar seljist einfaldlega upp nokkrum dögum fyrir jól.
Svo virðist sem vinsældir matreiðslubóka og þá kannski einkum prjónabóka séu að aukast umtalsvert eftir nokkurra ára hlé. Þessir bókaflokkar urðu óhemju vinsælir í kjölfar efnahagshrunsins þegar metnaðarfull eldamennska og vandað handverk náði tökum á lesendum. Í báðum greinum eru möguleikarnir ótæmandi og ef til vill má vænta mjúkra pakka og fleiri matarboða á nýju ári.
Mest seldu bækurnar 30. nóv - 6. des 2021
1. Sigurverkið - Arnaldur Indriðason
2. Lok, lok og læs - Yrsa Sigurðardóttir
3. Orri óstöðvandi - Kapphaupið um silfur Egils - Bjarni Fritzson
4. Úti - Ragnar Jónasson
5. Lára bakar - Birgitta Haukdal
6. Útkall : Í auga fellibylsins - Óttar Sveinsson
7. Alexander Daníel Hermann Dawidsson : Bannað að eyðileggja - Gunnar Helgason
8. Guðni á ferð og flugi – Guðni Ágústsson og Guðjón Ragnar Jónasson
9. Sextíu kíló af kjaftshöggum - Hallgrímur Helgason
10. Þín eigin ráðgáta - Ævar Þór Benediktsson
11. Rætur : Á æskuslóðum minninga og mótunar - Ólafur Ragnar Grímsson
12. Lára lærir á hljóðfæri - Birgitta Haukdal
13. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
14. Bílamenning : Akstursgleði liðinnar aldar í máli og myndum - Örn Sigurðsson
15. Horfnar - Stefán Máni
16. Fjárfestingar - Aníta Rut Hilmarsdóttir, Kristín Hildur Ragnarsdóttir og Rósa Kristinsdóttir
17. Læknirinn í englaverksmiðjunn - Ásdís Halla Bragadóttir
18. Heima hjá lækninum í eldhúsinu - Ragnar Freyr Ingvarsson
19. Jólasyrpa 2021 - Walt Disney
20. Lopapeysubókin - Gréta Sörensen
Mest seldu barna- og ungmennabækurnar
1. Orri óstöðvandi - Kapphaupið um silfur Egils - Bjarni Fritzson
2. Lára bakar - Birgitta Haukdal
3. Alexander Daníel Hermann Dawidsson : Bannað að eyðileggja - Gunnar Helgason
4. Þín eigin ráðgáta - Ævar Þór Benediktsson
5. Lára lærir á hljóðfæri - Birgitta Haukdal
6. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
7. Jólasyrpa 2021 - Walt Disney
8. Dagbók Kidda klaufa 14 - brot og braml - Jeff Kinney
9. Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding
10. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal
Mest seldu skáldverkin
1. Sigurverkið - Arnaldur Indriðason
2. Lok, lok og læs - Yrsa Sigurðardóttir
3. Úti - Ragnar Jónasson
4. Sextíu kíló af kjaftshöggum - Hallgrímur Helgason
5. Horfnar - Stefán Máni
6. Þú sérð mig ekki - Eva Björg Ægisdóttir
7. Jól á eyjahótelinu - Jenny Colgan
8. Náhvít jörð - Lilja Sigurðardóttir
9. Allir fuglar fljúga í ljósið - Auður Jónsdóttir
10. Vetrarfrí í Hálöndunum - Sarah Morgan
Mest seldu fræði- og handbækurnar
1. Útkall : Í auga fellibylsins - Óttar Sveinsson
2. Guðni á ferð og flugi – Guðni Ágústsson og Guðjón Ragnar Jónasson
3. Bílamenning : Akstursgleði liðinnar aldar í máli og myndum - Örn Sigurðsson
4. Fjárfestingar - Aníta Rut Hilmarsdóttir, Kristín Hildur Ragnarsdóttir og Rósa Kristinsdóttir
5. Heima hjá lækninum í eldhúsinu - Ragnar Freyr Ingvarsson
6. Lopapeysubókin - Gréta Sörensen
7. BBQ kóngurinn - Alfreð Fannar Björnsson
8. Prjón er snilld - Sjöfn Kristjánsdóttir
9. Bakað með Evu Laufey - Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
10. Bærinn brennur - Þórunn Jarla Valdimarsdóttir
Mest seldu ævisögurnar
1. Rætur : Á æskuslóðum minninga og mótunar - Ólafur Ragnar Grímsson
2. Læknirinn í englaverksmiðjunn - Ásdís Halla Bragadóttir
3. 11.000 volt : Þroskasaga Guðmundar Felix - Erla Hlynsdóttir
4. Gunni Þórðar : Lífssaga - Ómar Valdimarsson
5. Úr heljargreipum : saga Baldurs Freys - Baldur Freyr Einarsson
6. Ilmreyr : Móðurminning - Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
7. Hákarla-Jörundur : ævisaga Jörundar Jónssonar hákarlaformanns - Friðrik G. Olgeirsson
8. Sigurður Þórarinsson - mynd af manni I-II - Sigrún Helgadóttir
9. Markús : Á flótta í 40 ár : Öðruvísi Íslandssaga - Jón Hjaltason
10. Minn hlátur er sorg : Ævisaga Ástu Sigurðardóttur - Friðrika Benónýsdóttir
Mest seldu bækur ársins: 1. janúar – 6. desember 2021
1. Sigurverkið - Arnaldur Indriðason
2. Lok, lok og læs - Yrsa Sigurðardóttir
3. Lára bakar - Birgitta Haukdal
4. Palli Playstation - Gunnar Helgason
5. Úti - Ragnar Jónasson
6. Undir 1000 kr. fyrir tvo - Áslaug Björg Harðardóttir
7. Bréfið - Kathryn Hughes
8. Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding
9. Útkall : Í auga fellibylsins - Óttar Sveinsson
10. Lára lærir á hljóðfæri - Birgitta Haukdal
11. Sextíu kíló af kjaftshöggum - Hallgrímur Helgason
12. Rím og roms - Þórarinn Eldjárn og Sigrún Eldjárn
13. Þín eigin ráðgáta - Ævar Þór Benediktsson
14. Alexander Daníel Hermann Dawidsson : Bannað að eyðileggja - Gunnar Helgason
15. Verstu foreldrar í heimi - David Walliams
16. Orri óstöðvandi - Kapphaupið um silfur Egils - Bjarni Fritzson
17. Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
18. Fjárfestingar - Aníta Rut Hilmarsdóttir, Kristín Hildur Ragnarsdóttir og Rósa Kristinsdóttir
19. Dagbók Kidda klaufa 14 : brot og braml - Jeff Kinney
20. Lífsbiblían : 50 lífslyklar, sögur og leyndarmál - Alda Karen Hjaltalín og Silja Björk Björnsdóttir