Enski boltinn

Segir covid-kvíða hafa haft áhrif á frammistöðu Chelsea

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Emma Hayes hefur stýrt Chelsea undanfarin níu ár með frábærum árangri.
Emma Hayes hefur stýrt Chelsea undanfarin níu ár með frábærum árangri. epa/JOHAN NILSSON

Emma Hayes, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Chelsea, segir að áhyggjur leikmanna vegna kórónuveirufaraldursins hafi haft áhrif á frammistöðu þeirra í 4-0 tapinu fyrir Wolfsburg í Meistaradeild Evrópu í gær.

Chelsea var á toppi riðilsins fyrir leikinn í gær en féll niður í 3. sætið vegna tapsins og komst ekki í átta liða úrslit. Á síðasta tímabili komst Chelsea í úrslit Meistaradeildarinnar.

Í viðtali eftir leikinn í gær sagði Hayes að covid-kvíði hefði haft áhrif á frammistöðu Chelsea-liðsins.

„Þetta verður eitt erfiðasta viðtal sem ég hef farið í eftir leik því ég býst ekki við að neinn skilji þetta,“ sagði Hayes.

„Á síðasta ári fengum við tuttugu Covid-tilfelli, leikmenn voru einangraðir og gátu ekki farið heim og hitt fjölskyldur sínar. Þeir fá ekki þúsundir punda í vikulaun.“

Ann-Katr­in Ber­ger og Drew Spence gátu ekki tekið þátt í leiknum í gær eftir að þær greindust með veiruna.

„Við vitum að þegar við lendum á morgun [í dag] munu fleiri greinast með veiruna. Hugurinn var á reiki. Við erum mannleg. Ég er ekki að búa til afsakanir fyrir leikmennina en ég get sagt þér að síðustu þrír dagar höfum við haft miklar áhyggjur af því að þurfa að spila þennan leik,“ sagði Hayes.

„Þetta dreifir sér eins og eldur í sinu í svona liðsumhverfi. Ég er miður mín fyrir hönd leikmannnanna því við vitum öll að þessi frammistaða gefur ekki rétta mynd af mínu liði. Þetta er eins og deja vu. Við erum á sama stað og fyrir ári þegar slæm covid-bylgja skall á. Það átti stóran þátt í frammistöðu okkar í kvöld.“

Næsti leikur Chelsea er gegn Dagnýju Brynjarsdóttur og stöllum hennar í West Ham United í ensku ofurdeildinni á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×