Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. október 2026 23:15 Lionel Messi hefur bæði skapað sér nafn í fótboltanum og í náttúrufræðinni. Getty/Luciano Bisbal Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi hefur ekki aðeins skapað sér nafn í knattspyrnuheiminum heldur einnig í vísinda- og náttúruheiminum. Hann hefur afrekað nánast allt á fótboltaferlinum og auki hefur hann nú opinberlega sex tegundir nefndar eftir sér.
Argentínumaðurinn hafði þar til nýlega reyndar fimm tegundir þegar nefndar eftir sér, sem var þegar orðið að heimsmeti hjá Guinness. Nú hefur sú sjötta bæst í hópinn. Ný plöntutegund fær nefnilega nafn Messi vegna lita sinna. Nýuppgötvaða tegundin hefur hlotið nafnið „Salvia messii“ til heiðurs hinum 39 ára gamla leikmanni. Plantan á heimkynni sín í Andesfjöllum í Perú. Skýringin liggur í hvítum og ljósbláum blómum plöntunnar, sem minna á landsliðsbúning Argentínu. Nafnið endar á auka „i“ vegna þess að það fylgir grasafræðilegum nafngiftarreglum, þar sem stafnum er bætt við til að gefa til kynna að plantan sé nefnd í höfuðið á manneskju. Messi lék nýverið sinn 208. og síðasta landsleik fyrir Argentínu. Hann skoraði 126 mörk fyrir þjóð sína. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir Argentínu 18 ára gamall árið 2005 og varð fljótt lykilmaður. Hann vann Copa América tvisvar auk heimsmeistaratitilsins árið 2022. Messi tapaði einnig tvisvar í úrslitaleik HM (2014 og 2026). Enn um sinn heldur ferillinn áfram með félagsliði í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Þar leikur hann með Inter Miami og er sem stendur samningsbundinn út tímabilið 2028. Á laugardag skoraði Messi tvö mörk í 3-1 sigri á Atlanta United. Hann hefur nú skorað 936 mörk með félagsliðum og landsliði. En hvað með hinar tegundirnar? Vísindamenn uppgötvuðu nýja snákategund í Ekvador árið 2023 og nefndu hana Synophis messii til heiðurs stórstjörnunni. Snákurinn er lítil, eiturlaus tegund sem lifir í skýjaskógum Ekvadors. Rannsakendurnir vonuðust einnig til þess að með því að nefna hann eftir jafn þekktum manni og Messi myndi athygli beinast í auknum mæli að einstöku dýralífi svæðisins og nauðsyn þess að vernda það. View this post on Instagram A post shared by What The Kit (@whatthekit.official) Einnig árið 2023 uppgötvuðu vísindamenn nýja köngulóartegund í Argentínu og nefndu hana Acanthogonatus messii. Þetta er lítil tegund sem grefur sig í jörðu og finnst í sendnu landslagi þessa suðurameríska lands. Tegundirnar fimm eru: Liolaemus messii, eðla af undirættbálki iguana frá Rosario de Lerma-héraði í Argentínu, nefnd árið 2021; Acanthogonatus messii, jarðgrafandi kónguló af ættbálki mygalomorpha frá argentínsku Patagóníu, nefnd árið 2023; Discinisca messi, steingervingategund armfætlu frá meíósentímabilinu í Argentínu, nefnd árið 2023; Vultur messii, steingervingategund kondórs frá plíósentímabilinu í Argentínu, nefnd árið 2023; og Cercopemyces messii, sveppategund sem fannst í skýjaskógum Andesfjalla í Argentínu og var formlega lýst í tímaritinu Mycological Progress í maí 2024.“ Önnur argentínsk goðsögn, Diego Maradona, hefur einnig nokkrar tegundir nefndar eftir sér. Eitt dæmi er Bogasonia maradoniana, djúpsjávarsnigill sem argentínskir vísindamenn uppgötvuðu. Þeir völdu nafnið til heiðurs Maradona því hann var þjóðartákn sem færði Argentínu stolt og gleði, sérstaklega eftir sigurinn á HM 1986. Annað dæmi er Diegoglossidium maradonai, sníkjuflatormur sem finnst í ferskvatnsfiskum. Rannsakendurnir nefndu bæði nýju ættkvíslina og tegundina eftir Maradona og útskýrðu að tileinkuninni væri ætlað að fagna áhrifum hans og þeirri hamingju sem hann veitti milljónum manna um allan heim. Þeir bentu einnig á að það er ekki ætlað sem móðgun að nefna sníkjudýr eftir einhverjum. Í líffræði er það einfaldlega leið til að heiðra manneskju.
Argentína Fótbolti Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fleiri fréttir Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Sjá meira