Meistararnir á toppinn eftir öruggan sigur

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Bernardo Silva skoraði tvö mörk fyrir City í kvöld.
Bernardo Silva skoraði tvö mörk fyrir City í kvöld. Richard Heathcote/Getty Images

Englandsmeistarar Manchester City lyftu sér upp í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með öruggum 1-3 sigri gegn Watford í kvöld.

Yfirburður City voru algjörir í fyrri hálfleik og Raheem Sterling kom liðinu yfir strax á fjórðu mínútu. Bernardo Silva kom City svo í 0-2 eftir hálftíma leik og þannig var staðan þegar flautað var til hálfleiks.

Silva var svo aftur á ferðinni á 63. mínútu þegar hann skoraði eftir stoðsendingu frá Kyle Walker.

Juan Hernandez klóraði í bakkann fyrir heimamenn á 74. mínútu, en lokatölur urðu 1-3 sigur Manchester City.

Með sigrinum lyfti City sér upp í efsta sæti deildarinnar með 35 stig eftir 15 leiki. Watford situr hins vegar í 17. sæti deildarinnar með 13 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira