Tónlist

Árið 1996 var hápunktur í útgáfu danstónlistar

Tinni Sveinsson skrifar
Grétar og Frímann í umfjöllun Morgunblaðsins um plötuna sunnudaginn 20. október árið 1996.
Grétar og Frímann í umfjöllun Morgunblaðsins um plötuna sunnudaginn 20. október árið 1996.

Safnplatan PartyZone 96 á tuttugu og fimm ára útgáfuafmæli um þessar mundir. Í tilefni af því er bæði platan og besta danstónlist þess tíma spiluð í nýjustu tveimur þáttum PartyZone og er hægt að hlusta á þá á Vísi og í öppum Bylgjunnar, FM957 og X977. 

„Haustið 1996 var viðburðaríkur tími í PartyZone. Þátturinn var á fullu á laugardagskvöldum á Xinu, við héldum rosaleg kvöld á Tunglinu og Tetriz í Fishersundi, þar sem Basement Jaxx spiluðu meðal annarra fyrir troðfullu húsi,“ segir Helgi Már Bjarnason, einn umsjónarmanna PartyZone.

„Við héldum afar eftirminnileg og ólögleg danspartý, eða rave, í bragga í Nauthólsvíkinni. Síðast en ekki síst voru Grétar og Frímann aðal plötusnúðarnir því þeir mixuðu saman þriðja PartyZone diskinn, PartyZone 96, sem á nú 25 ára útgáfuafmæli. Við ferðumst þangað í nýjustu tveimur þáttunum og spilum alla helstu slagarana og gleymdar dansperlur frá þessum tíma.“

Klippa: Party Zone - 1996 þáttur

Nostalgía yfir árinu 1996

Plötusnúðurinn Símon FKNHNDSM fékk það verkefni að útbúa nostalgíumix fyrir árið 1996 í fyrri þættinum, sem hlusta má á í spilaranum hér fyrir ofan. 

Fundnir voru þrír PartyZone listar frá haustinu 1996 til að nota sem grunn. Í kjölfarið lagðist Símon í mikið grúsk og er útkoman er rúmlega tveggja tíma mix þar sem stiklað er á því besta sem var að gerast á þessu ári.

„Í þættinum droppa ég dansklassíkerum hægri, vinstri og lofa gæsahúð,“ segir Símon. „Þetta ár var ég 16 ára og hlustaði á PartyZone á hverjum laugardegi. Ég mundi vel eftir sumum lögunum og enduruppgötvaði önnur sem ég mun án efa nota þegar ég spila á næstum vikum. Til dæmis tryllinginn sem má heyra hérna fyrir neðan. Þetta er strangheiðarleg ofurklassík sem ég hef verið að leita að lengi.“

Hátindur í house og teknó

Þegar maður ber saman tónlistina í dag við það sem er að gerast þarna fyrir 25 árum sér maður hvað house og teknó tónlist var á miklum hátindi þarna. Þvílíka snilldarstöffið. Núna er framboðið ótrúlega mikið en þarna var hlutfall milli gæða og framboðs svo miklu hærra,“ segir Helgi Már.

„Við vorum svo gáfaðir að safna saman öllum PZ listunum í möppu, þannig að við getum gengið i þessar heimildir. Listarnir sem við létum Símon hafa eru bara handrit beint úr þættinum, gulnuð blöð. Í dag eru þeir frábær heimild um hvað var í gangi í tónlistinni og senunni á þessum tíma.“

Klippa: PartyZone 96 - diskurinn í heild

Mikil spenna í kringum útgáfuna

Í seinni þættinum er PartyZone 96 spilaður í fullri lengd og má því segja að DJ Grétar og DJ Frímann séu plötusnúðar þáttarins. Helgi Már rifjar upp spenninginn í kringum útgáfuna og danstónlistarsenuna haustið 1996:

„PartyZone´96 er þriðji PartyZone diskurinn sem þátturinn gaf út með viðhöfn í október 1996.

Grétar og Frímann mixuðu hann saman á vínyl í Stúdíó Sýrlandi. Þeir tóku þátt í að velja lögin en þarna átti að gefa þyngri hluta þáttarins meiri athygli. Fyrri diskarnir höfðu gengið gríðarlega vel og voru uppseldir. Teknó og house-tónlist náði miklum vinsældum eftir dansárið mikla 1995 en danstónlistarsenan og plötusnúðar hennar voru samt ennþá neðanjarðar.“

Framhlið plötunnar.

„Haldin var vegleg útgáfuhátíð á skemmtistaðnum Tetriz í Fishersundi sem var skammlífur en vinsæll skemmtistaður á þeim tíma. Þarna var nýlega búið að loka hinum goðsagnakennda Rósenberg kjallara og senan á hrakhólum hvað skemmtistaði snerti. Kaffibarinn var nýlega byrjaður að bjóða uppá plötusnúða og Tunglið á niðurleið.

Diskurinn sat í nokkrar vikur á Íslenska breiðskífulistanum innan um margar rokk- og popphetjur þess tíma. Það var lögð mikil vinna í að fá leyfi fyrir lögunum á diskinn og þurfti að senda afar mörg föx á hinar ýmsar plötuútgáfur. Einnig var sem fyrr metnaður í gangi hvað varðar plötuumslagið. Ólíkt fyrri diskunum var framleitt aukaupplag af honum þegar fyrsta framleiðslan seldist upp. Þessi diskur er mörgum afar hjartfólginn og á tryggan aðdáendahóp.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×