Fótbolti

Þúsundir miða í boði á landsleikinn í kvöld

Sindri Sverrisson skrifar
Jón Dagur Þorsteinsson hefur leikið vel að undanförnu með AGF í Danmörku og er einn af ungu leikmönnunum sem nú þurfa að taka við keflinu í íslenska landsliðinu.
Jón Dagur Þorsteinsson hefur leikið vel að undanförnu með AGF í Danmörku og er einn af ungu leikmönnunum sem nú þurfa að taka við keflinu í íslenska landsliðinu. vísir/Hulda Margrét

Það er af sem áður var hjá íslenska karlalandsliðinu í fótbolta. Í hádeginu höfðu aðeins um 2.000 miðar selst á leikinn við Armeníu á Laugardalsvelli í kvöld, í undankeppni HM.

Um 4.000 miðar eða svo eru því enn í boði fyrir þau sem vilja skella sér í Laugardalinn í kvöld að sjá nýtt landslið í smíðum mæta Henrikh Mkhitaryan og félögum í armenska liðinu.

Þegar vel gekk hjá íslenska landsliðinu fylktist fólk á Laugardalsvöll sem breyttist í mikið heimavallarvígi, á góðæristímanum þegar Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson voru við stjórnvölinn.

Á árunum 2013-2017 lék Ísland sextán heimaleiki í röð án þess að tapa og tryggði sér sæti í lokakeppni bæði EM og HM. Nær alltaf var uppselt á hinum 9.800 manna Laugardalsvelli á þessum árum.

Áfram var vel mætt á heimaleiki Íslands undir stjórn Eriks Hamrén, þó sjaldan væri alveg uppselt. Svo skall kórónuveirufaraldurinn á, og þar með samkomutakmarkanir sem þó fara sífellt minnkanki.

Eftir faraldurinn, slakara gengi landsliðsins undanfarið og alvarlegar ásakanir á hendur stærstu stjörnum liðsins, hefur stuðningur við liðið minnkað. Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari sagði á blaðamannafundi í gær eðlilegt að tengingin á milli þjóðarinnar og landsliðsins hefði veikst. Það væri í höndum hans og leikmanna að byggja upp traust og trúa á liðinu á nýjan leik.

Á síðasta heimaleik, 4-0 tapið gegn Þýskalandi í september, var þó uppselt og mættu 3.505 manns. Tæplega helmingi færri eða 1.862 manns sáu leikinn við Norður-Makedóníu og 1.961 sáu leikinn við Rúmeníu nokkrum dögum áður. Þá máttu aðeins 200 manns vera í hverju sóttvarnahólfi en geta verið 500 nú og því er pláss fyrir um það bil 6.000 áhorfendur á Laugardalsvelli í kvöld.

Leikur Íslands og Armeníu hefst klukkan 18.45 og verður ítarlega fjallað um leikinn á Vísi. Miðasala á leikinn er á tix.is.


Tengdar fréttir

Birkir Bjarna: „Ekki kjörstaða að vera ekki með okkar bestu menn“

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tekur á móti Armenum á í undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli í dag. Birkir Bjarnason, leikmaður íslenska liðsins, fór yfir leikinn sem framundan er, og möguleika Íslands á að komast aftur á þann stall sem liðið var á áður.

„Það er mjög erfitt að pirra mig“

Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari í fótbolta, segir að ungu leikmennirnir í landsliðinu þurfi að læra hratt og vel. Hann ergir sig ekki á því hve marga leikmenn vantar í hópinn að þessu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×