Veður

Spá ofsa­veðri norð­vestan­til og við­varanir í gildi á stærstum hluta landsins

Atli Ísleifsson skrifar
Íbúar á umræddum svæðum eru minntir á að gular og appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi fram á kvöld, og vart þarf að taka fram að tryggja þarf lausamuni utandyra og að ráðið er frá ferðalögum.
Íbúar á umræddum svæðum eru minntir á að gular og appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi fram á kvöld, og vart þarf að taka fram að tryggja þarf lausamuni utandyra og að ráðið er frá ferðalögum. Veðurstofan

Spáð er norðvestanhríð norðan- og vestanlands í dag, en stórhríð á Ströndum og Vestfjörðum og rok eða jafnvel ofsaveður við Breiðafjörð. Appelsínugular viðvaranir taka gildi á Breiðafirði, Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra í dag og gilda fram á kvöld. Einnig er búið að gefa út gular viðvaranir víða annars staðar.

Kröpp og djúp lægð gengur með norðurströndinni í dag og sveigir yfir Vestfirði í kvöld. „Hvessir því mjög af norðri og norðvestri og má reikna með stormi víða á norðanverðu landinu undir hádegi, en roki eða ofsaveður á Vestfjörðum, Ströndum og við Breiðafjörð.

Frá Súðavík upp úr klukkan 10 í morgun.Vefmyndavél Snerpu

Lægðinni fylgir öflugt úrkomusvæði, sem mun skila talsverðri eða mikilli rigningu á láglendi nyrðra, en slyddu eða snjókomu inn til landsins. Einnig gengur á með norðvestanhvassviðri eða -stormi og éljagangi á Vesturlandi. Best sleppur þó Suður- og Suðausturland við óveðrið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Óvissuástandi lýst yfir

Óvissuástandi almannavarna hefur verið lýst yfir, en á vef Veðurstofunnar segir að líklega megi búast við samgöngu- og rafmagnstruflunum á Norðurlandi, Ströndum og Vestfjörðum Vonandi takist þó að koma í veg fyrir eigna- og heilsutjón.

Úr Sundahöfn á Ísafirði klukkan 10:15 í morgun.Vefmyndavél Snerpu

Appelsínugul viðvörun tekur gildi í Vestfjörðum klukkan 10 og er í gildi til klukkan 20. Þar er spáð norðvestan 20-28 metra á sekúndu og talsverðri snjókoma með skafrenningi og lélegu skyggni. Hætta á foktjóni og ekkert ferðaveður, en einnig má búast má við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda.

Vindaspá fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er appelsínugul viðvörun í gildi frá 11 til 18. Þar er nú spáð norðvestan 18 til 25 metrum á sekúndu og talsverðri snjókomu með skafrenningi og lélegu skyggni.

Á Breiðafirði er spáð norðvestan stormi eða roki og éljagangi og er appelsínugul viðvörun í gildi frá 15 til 23. Norðvestan átján til 25 metrar á sekúndu með éljagangi með skafrenningi og lélegu skyggni. Hætta á foktjóni og ekkert ferðaveður. Einnig má búast má við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda.

Frá Hrafnseyri klukkan 10:15 í morgun.Vefmyndavél Snerpu

Á höfuðborgarsvæðinu er gul viðvörun í gildi frá 13 til miðnættis. Er spáð þrettán til átján metrum á sekúndu og gengur á með éljum. Færð gæti spillst.

Einnig hafa verið gefnar út gular viðvaranir á Faxaflóasvæðinu, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og á Miðhálendi.

Lægir seint í kvöld

„Seint í kvöld og nótt fer loks að draga úr veðurhæð og úrkomu og á morgun er spáð sunnankalda eða -strekkingi með skúrum eða slydduéljum, en hægari vindi og þurrviðri norðaustan til. Fremur svalt í veðri, þó að hiti geti náð 9 stigum suðaustanlands að deginum,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákortið fyrir klukkan 18 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Suðlæg átt, 8-15 m/s og víða skúrir eða slydduél, en hægari og úrkomulítið NA-til. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn.

Á fimmtudag: Norðaustan 8-15 m/s en 15-20 m/s SA-til. Rigning með köflum á A-verðu landinu, annars þurrt að kalla. Hiti víða 2 til 7 stig.

Á föstudag: Norðan og norðaustan 8-15 m/s og rigning, en þurrt að mest S- og V-lands. Hiti 4 til 9 stig.

Á laugardag og sunnudag: Norðanáttir og víða rigning, en bjart með köflum sunnan heiða. Milt veður.

Á mánudag: Útlit fyrir áframhaldandi norðanáttir með rigningu eða slyddu, en bjartviðri syðra og kólnandi veður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×