Tónlist

Álf­heiður fær ekki að keppa í BBC Car­diff Sin­ger of the World vegna veirunnar

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Álfheiður fékk að taka þátt í hluta undankeppninnar en þurfti frá að víkja.
Álfheiður fékk að taka þátt í hluta undankeppninnar en þurfti frá að víkja. Aðsend/Stephanie Wake-Edwards

Íslenska sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir fær ekki að halda áfram keppni í BBC Cardiff Singer of the World en hún hefur verið skikkuð í sóttkví eftir að einstaklingur í flugvélinni hennar á leið frá Íslandi til Bretlands greindist smitaður af veirunni.

Álfheiður hefur farið í þrjú Covid-próf síðan hún kom til Cardiff sem öll reyndust neikvæð, en fær samt ekki að halda áfram keppninni. Henni hefur þó þegar verið boðið að taka þátt árið 2023 og segist spennt fyrir því að geta stigið á svið og sungið vonandi fyrir fullan sal af áheyrendum.

„Þegar ég áttaði mig á því að ég gæti ekki haldið keppninni áfram varð ég auðvitað mjög sorgmædd og fyrir miklu áfalli af því að þetta ferli hefur verið svo langt. Andlega álagið sem fylgir undirbúningnum fyrir eina stærstu söngkeppni heims er gífurlegt en þetta hefur að sjálfsögðu bara gert mig sterkari og reynslunni ríkari. En jú vissulega hefur mest allur tími minn undanfarið verið helgaður þessari keppni,“ segir Álfheiður í samtali við fréttastofu.

Hefur lengi dreymt um að taka þátt í keppninni

Álfheiður ólst upp í tónlistarfjölskyldu og hóf söngnám aðeins þriggja ára í Suzukitónlistarskólanum í Reykjavík. Síðar hóf hún nám í Söngskóla Sigurðar Demetz og söng í fjölda kóra og hélt svo áfram tónlistarnáminu í Hanns Eisler tónlistarháskólanum í Berlín, þaðan sem hún lýkur mastersnámi í klassískum söng næsta júlí. Hún segir það lengi hafa verið draum hjá sér að taka þátt í keppninni í Cardiff.

„Ég hef alltaf fylgst með þessari keppni, ég man eftir því að hafa horft á hana í sjónvarpinu á RÚV sem ung stelpa, var alveg heltekin og gat ekki hætt að horfa á þessa frábæru söngvara. Ég hef síðan þá alltaf látið mig dreyma um að taka þátt sjálf og í fyrra þegar ég sá auglýst eftir þátttakendum, þá ákvað ég að sækja um“ segir Álfheiður.

Ársferli endaði í sóttkví á hótelherbergi

Ferlið við að komast í keppnina var að sögn Álfheiðar langt og strangt.

„Ég var ekkert mjög vongóð því ég áttaði mig á því að aðsóknin var mikil í þessa keppni. Þetta var mjög langt umsóknarferli og ég þurfti að senda þeim mörg myndbönd af mér að syngja. Það er gaman að segja frá því, að í síðasta umsóknarþrepinu sendi ég þeim upptöku frá aðventutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem voru í beinni útsendingu á RÚV og eftir það fékk ég formlegt boð í keppnina ásamt 15 öðrum söngvurum hvaðanæva úr heiminum. Ég er ótrúlega stolt og þakklát fyrir þann mikla heiður að hafa fengið boð, sérstaklega af því að í ár var metfjöldi umsækjenda.“

Álfheiður segist vongóð um að geta tekið þátt i keppninni árið 2023.Aðsend/Ovors

Þá hafi mikill tími farið í að velja lögin sem hún ákvað að syngja í keppninni. „Þá tók við alveg rosalegur undirbúningur og skriffinnska og umstang. Við þurftum að tilkynna með góðum fyrirvara hvaða verk við vildum flytja og sömuleiðis voru tekin við okkur mörg viðtöl og við jafnvel beðin um að mynda ferðalögin okkar til Cardiff svo BBC gæti sýnt frá þessari sérstöku Covid útgáfu keppninnar.“

„Það þýðir ekkert að velta sér of mikið upp úr þessu“

Keppnin er tvískipt. Annars vegar er keppt í ljóðasöng með píanóleikara og hins vegar í flutningi verka ásamt sinfóníuhljómsveit. Álfheiður hafði tekið þátt í fyrsta hluta keppninnar í ljóðasöngnum þegar fréttirnar bárust um að hún þyrfti að fara í sóttkví.

Álfheiður lærir óperusöng við Hanns Eisler tónlistarháskólann í Berlín.Aðsend/Ingo Hoehn

„Það gekk ótrúlega vel og ég hef fengið frábær viðbrögð fyrir þann flutning. Nokkrum dögum síðar og aðeins klukkustund áður en átti að vera mætt á hljómsveitaræfingu fyrir fyrstu umferðina með hljómsveitinni, kom þessi tölvupóstur frá velskum heilbrigðisyfirvöldum um að ég yrði að fara í sóttkví þar sem smit hafði greinst hjá farþega í sama flugi,“ segir Álfheiður.

„Ég þakklát fyrir að hafa ekki veikst og það þýðir ekki að velta sér of mikið upp úr þessum óvænta og sára viðsnúningi. Næst á dagskrá hjá mér er undirbúningur fyrir útskriftartónleika mína í meistaranáminu og ég hlakka mikið til að flytja verk á þeim tónleikum sem ekki fengu að hljóma í Cardiff,“ segir Álfheiður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×