Bíó og sjónvarp

Birta fyrstu stikluna úr Kötlu

Atli Ísleifsson skrifar
Þættirnir verða teknir til sýninga 17. júní.
Þættirnir verða teknir til sýninga 17. júní. Netflix/Lilja Jónsdóttir

Fyrsta stiklan úr Kötlu, fyrstu íslensku þáttaröðinni sem framleidd er fyrir Netflix, hefur verið birt.

Í tilkynningu segir að um tilfinningaþrungna og dularfulla vísindaskáldsöguþætti úr smiðju leikstjórans Baltasars Kormáks sé að ræða sem verði teknir til sýninga um allan heim þann 17. júní. Eru þættirnir átta talsins.

„Þegar Katla hefur gosið samfellt í eitt ár er Gríma ennþá að leita að systur sinni sem hvarf daginn sem eldfjallið hóf að gjósa. Þegar von hennar um að finna lík systur sinnar fer dvínandi fara íbúar á svæðinu að fá heimsóknir frá óvæntum gestum. Kannski leynist eitthvað undir jöklinum sem enginn gat séð fyrir.

Með hlutverk fara Guðrún Ýr Eyfjörð, Íris Tanja Flygenring, Ingvar Sigurðsson, Þorsteinn Bachmann, Sólveig Arnarsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Baltasar Breki, Björn Thors, Haraldur Ari Stefánsson, Birgitta Birgisdóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Aldís Amah Hamilton, Hlynur Atli Harðarson og Svíarnir Aliette Opheim and Valter Skarsgård.“

Að neðan má sjá stikluna.

Netflix/Lilja Jónsdóttir
Netflix/Lilja Jónsdóttir
Netflix/Lilja Jónsdóttir
Netflix/Lilja Jónsdóttir
Netflix/Lilja Jónsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×