Skelfi­leg byrjun varð Chelsea að falli er Barcelona vann Meistara­deild Evrópu í fyrsta sinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Barcelona varð í kvöld Evrópumeistari.
Barcelona varð í kvöld Evrópumeistari. Getty Images

Barcelona gekk einfaldlega frá Chelsea á rúmum hálftíma er liðin mættust í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í dag. Lokatölur 4-0 Börsungum í vil sem voru að vinna Meistaradeildina í fyrsta sinn.

Chelsea – sem hefur átt frábært tímabil á Englandi – gat vart byrjað leikinn verr og segja má að byrjunin hafi í raun verið formsmekkurinn að því sem koma skal.

Börsungar óðu í sókn strax í upphafi leiks og áttu skot í slá. Í kjölfarið myndaðist mikill glundroði í vítateig Chelsea sem endaði með því að Millie Bright hreinsaði boltann í Melanie Leupolz og þaðan í netið.

Martraðarbyrjun Chelsea og átti staðan aðeins eftir að versna. Þegar tæpur stundarfjórðungur var liðinn fékk Barcelona vítaspyrnu, segja má að dómurinn hafi verið harður og þá sérstaklega í ljósi aðstæðna. Alexia Putellas fór hins vegar á punktinn og skoraði af miklu öryggi, staðan orðin 2-0 og Barcelona í góðum málum.

Aitana Bonmatí gulltryggði svo sigur Börsunga með þriðja marki liðsins á 21. mínútu leiksins. Barcelona sundurspilaði Chelsea-liðið og á endanum renndi Jennifer Hermoso knettinum inn fyrir vörn Bláliða frá Lundúnum á Bonmatí sem skoraði með góðu skoti framhjá Ann-Katrin Berger í marki Chelsea.

Á 36. mínútu kórónaði Caroline Hansen svo frábæran leik Barcelona og afhroð Chelsea þegar hún renndi knettinum í netið af stuttu færi eftir magnaðan undirbúning Lieke Martens.

Martens spændi þá upp vinstri vænginn og fór einkar illa með Jessicu Carter, vinstri bakvörð Chelsea, í aðdraganda marksins. Martens lagði boltann svo fyrir markið þar sem Hansen gat ekki annað en skorað.

Staðan orðin 4-0 og þannig var hún er flautað var til loka fyrri hálfleiks. Ljóst var að Chelsea þurfti kraftaverk í síðari hálfleik til þess eins að komast inn í leikinn, hvað þá að vinna hann.

Þó svo að Pernille Harder – að margra mati besti leikmaður ársins 2020 – hafi fengið nokkur fín færi í liði Chelsea þá tókst henni aldrei að valda Söndru Paños í marki Barcelona vandræðum.

Chelsea reyndi hvað það gat til að minnka muninn en ekkert gekk upp og Barcelona vann á endanum sannfærandi 4-0 sigur og þar með Meistaradeild Evrópu árið 2021. 

Barcelona tryggði sér sigurinn með frábærri spilamennsku á fyrsta hálftíma leiksins.Barcelona

Er þetta fyrsti Meistaradeildartitill í sögu félagsins. Það er í kvennaflokki, þar með er Barcelona orðið fyrsta knattspyrnufélag sögunnar til að vinna Meistaradeild Evrópu í bæði karla- og kvennaflokki.

Frábært tímabil Barcelona heldur því áfram en liðið hefur unnið alla 26 leiki sína í spænsku úrvalsdeildinni og hefur nú þegar tryggt sér spænska titilinn. Ofan á það vann liðið topplið ensku úrvalsdeildarinnar sannfærandi í úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira