Mikilvægur sigur Newcastle

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jacob Murphy fagnar jöfnunarmarkinu á Turf Moor í dag.
Jacob Murphy fagnar jöfnunarmarkinu á Turf Moor í dag. Jon Super/Getty

Newcastle kom til baka gegn Burnley og vann 2-1 sigur í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Matej Vydra kom Burnley yfir á átjándu mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Jacob Murphy jafnaði metin eftir klukkutímaleik og fimm mínútum síðar skoraði Allan Saint-Maximin sigurmarkið.

Sigurinn var ansi mikilvægur fyrir Newcastle sem færist því fjar fallsætinu en nú eru þeir sex stigum frá Fulham.

Newcastle er með 32 stig í sautjánda sætinu en Fulham er með 26 stig í átjánda sætinu.

Burnley er í fimmtánda sætinu með 33 stig en Jóhann Berg Guðmundsson spilaði í 91 mínútu fyrir Burnley.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira