Tottenham gerði góða ferð til Birmingham borgar þar sem liðið heimsótti Aston Villa í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Jose Mourinho tefldi þeim Harry Kane og Vinicius fram í fremstu víglínu og þeir sáu um markaskorunina í leiknum.
Vinicius kom Tottenham í forystu eftir flottan samleik Kane og Lucas Moura eftir hálftíma leik.
Á 68.mínútu gerði Matty Cash sig sekan um slæm mistök þegar hann braut klaufalega á Kane innan vítateigs. Kane tók vítaspyrnuna sjálfur og skoraði af miklu öryggi.
Fleiri urðu mörkin ekki og öruggur 0-2 sigur Tottenham staðreynd.