Southampton fyrsta liðið í undanúrslit FA bikarsins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Nathan Redmond skoraði tvö mörk fyrir gestina í dag.
Nathan Redmond skoraði tvö mörk fyrir gestina í dag. vísir/getty

Southampton heimsótti granna sína í Bournemouth í FA bikarnum í dag. Bournemouth var eina B-deildar liðið sem eftir var í keppninni, en þeir voru ekki mikil fyrirstaða fyrir Úrvalsdeildarlið Southampton.

Southampton skoruðu fyrsta mark leiksins eftir aðeins 12 mínútur, en við nánari skoðun með aðstoð myndbanstækni var það þó dæmt af vegna rangstöðu.

Á 37. mínútu komust gestirnir þó yfir með löglegu marki. Þar var að verki Moussa Djenepo eftir stoðsendingu frá Nathan Redmond.

Redmond var svo sjálfur á ferðinni þegar hann tvöfaldaði forskot sinna manna rétt fyrir hálfleik. Markið þegar ein mínúta var komin fram yfir venjulega leiktíma í fyrri hálfleik, og gestirnir því í góðri stöðu þegar gengið var til búningsherbergja.

Nathan Redmond innsiglaði svo sigurinn með sínu öðru márki á 59. mínútu. Southampton eru því komnir í undanúrslit FA bikarsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira