Fótbolti

Þeir okkar sem fara á EM verða hundrað prósent tilbúnir

Sindri Sverrisson skrifar
Íslensku strákarnir fagna sigurmarkinu gegn Írum í nóvember sem skilaði þeim á endanum í lokakeppni EM.
Íslensku strákarnir fagna sigurmarkinu gegn Írum í nóvember sem skilaði þeim á endanum í lokakeppni EM. Getty/Harry Murphy

Það skýrist væntanlega í næstu viku hverjir verða fulltrúar Íslands þegar U21-landsliðið í fótbolta fer í lokakeppni EM í aðeins annað sinn í sögunni. Alfons Sampsted segir liðið hiklaust eiga að stefna á að komast upp úr sínum riðli.

Alfons hefur leikið 30 leiki fyrir U21-landsliðið og átti sinn þátt í að koma liðinu upp úr erfiðum undanriðli í fyrra. Þó að hann sé að verða 23 ára er hann, líkt og allir sem fæddir eru 1998 og síðar, gjaldgengur í U21-hópinn sem Davíð Snorri Jónasson tilkynnir á næstunni.

Davíð Snorri er nýr þjálfari U21-liðsins og tók við af Arnari Þór Viðarssyni sem nú stýrir A-landsliðinu. Vel gæti farið svo að Arnar velji Alfons og fleiri úr U21-liðinu í fyrstu leikina í undankeppni HM, sem fara fram á sama tíma og U21-liðið spilar á EM dagana 25.-31. mars.

Alfons segir báða kosti ótrúlega skemmtilega og vill helst ekki gera upp á milli þeirra. Aðspurður hvort félagar hans úr U21-hópnum, sem tekist hefur að afreka það sama og gullkynslóð íslensks fótbolta gerði fyrir áratug síðan, séu ekki duglegir að senda skilaboð og þrýsta á hann að koma til Ungverjalands á EM, segir Alfons:

„Jú, jú. Við erum allir í bandi og það er mjög góð heild í þessum hópi. Það vilja náttúrulega allir að sem flestir hinna séu með. En ég veit bara að þeir okkar sem fara til Ungverjalands verða allir 100 prósent klárir, sama úr hvaða átt þeir koma. Þetta er EM og það verða allir tilbúnir,“ segir Alfons.

Alfons Sampsted

Alfons er 22 ára gamall, hægri bakvörður hjá norska meistaraliðinu Bodö/Glimt. Hann varð meistari á fyrsta ári með liðinu eftir að hafa leikið í Svíþjóð árin á undan, og með Breiðabliki. Alfons er uppalinn Bliki og á að baki 25 leiki í efstu deild.

Alfons er leikjahæsti leikmaður í sögu U21-landsliðsins með 30 leiki. Hann hefur leikið tvo vináttulandsleiki með A-landsliðinu.

Ísland er í riðli með Rússlandi, Danmörku og Frakklandi á EM. Leikið er í Györ í Ungverjalandi og komast tvö efstu liðin áfram á seinna stig lokakeppninnar; í átta liða útsláttarkeppnina í júní.

„Við kepptum við Danmörku fyrir tveimur árum svo við þekkjum það lið aðeins, og fleiri leikmenn úr hinum liðunum. Það á eftir að fara betur yfir þetta en mér finnst möguleikinn bara góður [á að komast upp úr riðlinum],“ segir Alfons.

Alfons gæti farið í annað þessara verkefna:

EM U21 í Ungverjalandi:

  • 25. mars: Rússland – Ísland
  • 28. mars: Danmörk – Ísland
  • 31. mars: Frakkland – Ísland

A-landsliðið í undankeppni HM:

  • 25. mars: Þýskaland – Ísland
  • 28. mars: Armenía – Ísland
  • 31. mars: Liechtenstein – Ísland

Ísland skildi meðal annars eftir lið Írlands og Svíþjóðar í baráttunni um að komast á EM.

„Mér fannst við sýna það í öllum leikjum í undankeppninni, fyrir utan tapið gegn Svíum úti þar sem við vorum svolítið barnalegir, að við getum náð í úrslit gegn hverjum sem er. Við getum spilað þéttan varnarleik og refsað þegar tækifæri gefst. Það er ekkert sem segir mér að við eigum ekki séns á að fara áfram og við eigum bara að fara þarna inn með gott sjálfstraust og væntingar um að komast áfram,“ segir Alfons.

U21-landsliðið er vissulega í svolítið sérstakri stöðu því eftir að hafa komist áfram á EM, með nokkuð dramatískum hætti í nóvember, urðu þjálfaraskipti hjá liðinu eins og fyrr segir:

„Ég er búinn að spjalla við Davíð og hann lítur út fyrir að vera flottur arftaki. Eins og hann hefur sagt sjálfur ætlar hann að byggja upp á því sem hefur verið gert hingað til enda fær hann mjög stuttan tíma. Mér finnst hann lofa mjög góðu,“ segir Alfons.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×