Tónlist

Föstudagsplaylisti DJ Kötlu

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Katla er ekki spennt fyrir eldgosi.
Katla er ekki spennt fyrir eldgosi. Ragnar Árna

Katla Ásgeirsdóttir þekkir einna best vísindin á bak við það að glæða dansgólf Reykjavíkur lífi. Beiðnin um að setja saman föstudagslagalista varð til þess að hún keypti Spotify áskrift, sem sonur hennar hafði suðað um í tvö ár. Eftir viku af ósætti við leitarvélina og lagaúrvalið féll dómurinn; „Spotify er alveg mestu vonbrigði ársins 2021 hingað til.“

Samhliða því að þeyta skífum reglulega vinnur Katla sem viðskiptaþróunarstjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Miðeind.

Þessa dagana lætur hún sig dreyma um sumarið og stefnir á að „biðja til guðs að ekki komi eldgos og veggfesta allt heima“ fram að því. „Lesa mjög mikið af bókum, bíða eftir vorinu og eyða gæðastundum með erfingjanum.“

Lagalistann segir hún vera ferðalag um tíma og rúm. „Hann hefst á tregafullum 70’s slagara, nokkrum vel völdum 80’s smellum og Arcade Fire meistaraverkinu Put Your Money on Me.“ Listinn hafi endað með sterkri breskri og franskri slagsíðu.

„Þarna er fullt af danstónlist sem stendur hjarta mínu nærri og má sjá mig syngja með af mikilli innlifun þegar vel ber í veiði. Að vísu er líka eitt lag á listanum sem mér finnst bara alls ekki spes en setti samt inn. Svona gestaþraut, gæti verið gaman að giska á hvaða lag það er t.d. ef fólk er í sóttkví og leiðist?“ Covid-þraut dagsins í boði Kötlu.

Fullt tungl er á morgun, 27. febrúar, og því fær fær uppáhaldslag Kötlu um tunglið að kóróna listann, „Lokalagið/kórónan „Hey Moon“ með John Maus er hrátt, angurvært og strangheiðarlegt, alveg eins og lífið sjálft.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×