Þolinmæðisverk þegar Liverpool lagði botnliðið að velli Arnar Geir Halldórsson skrifar 28. febrúar 2021 21:10 Úr leiknum í kvöld. vísir/Getty Liverpool batt enda á taphrinu sína þegar liðið vann 0-2 sigur á Sheffield United í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Leikið var á Bramall Lane og lögðust heimamenn í skotgrafirnar snemma leiks sem virkaði fyrir þá í fyrri hálfleik þar sem ekkert mark var skorað þrátt fyrir þunga sókn gestanna. Síðari hálfleikur var aðeins nýbyrjaður þegar gestirnir fundu leiðina í gegnum þéttan varnarmúr heimamanna. Það var miðjumaðurinn ungi, Curtis Jones, sem kom boltanum framhjá Aaron Ramsdale eftir fyrirgjöf Trent Alexander Arnold. 0-1 varð 0-2 þegar skot Roberto Firmino á 64.mínútu hafnaði í netinu. Skotið hafði viðkomu í Kean Bryan, varnarmanni Sheffield United, og var markið skráð sem sjálfsmark á hann. Fleiri urðu mörkin ekki og kærkominn sigur meistaranna staðreynd. Enski boltinn
Eins og að fara í ristilskoðun og svo beint til tannlæknis að láta rífa úr sér endajaxla“ Íslenski boltinn
Uppgjörið: Olympiacos-Valur 31-27 [4-5] | Valsmenn Evrópubikarmeistarar eftir sigur í vítakeppni Handbolti
„Eins og að fara í ristilskoðun og svo beint til tannlæknis að láta rífa úr sér endajaxla“ Íslenski boltinn
Uppgjörið: Olympiacos-Valur 31-27 [4-5] | Valsmenn Evrópubikarmeistarar eftir sigur í vítakeppni Handbolti