Ca­semiro skallaði Real nær grönnunum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Casemiro var heldur betur ánægður með skallamarkið sitt í dag.
Casemiro var heldur betur ánægður með skallamarkið sitt í dag. David S. Bustamant/Getty

Real Madrid vann mikilvægan 1-0 sigur á nöfnum sínum í Real Valladolid í síðasta leik dagsins í spænska boltanum.

Gestirnir frá Madríd komu boltanum tvívegis í net Valladolid í fyrri hálfleik en í bæði skiptin voru mörkin dæmd af vegna rangstæðu.

Staðan var markalaus í hálfleik en á 65. mínútu skoraði Casemiro sigurmarkið með sínu fimmta marki á leiktíðinni. Stangaði hann aukaspyrnu Toni Kroos í netið.

Atletico Madrid tapaði fyrr í dag og Real minnkaði forskot Atletico því niður í þrjú stig. Atletico á þó leik til góða á Real.

Valladolid er í næst neðsta sæti deildarinnar með 21 stig.


Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira