Magnaður Håland sá um Sevilla

Anton Ingi Leifsson skrifar
Håland skoraði tvö af mörkum Dortmund í kvöld. Hann hefur farið á kostum í Meistaradeildinni.
Håland skoraði tvö af mörkum Dortmund í kvöld. Hann hefur farið á kostum í Meistaradeildinni. David S. Bustamante/Getty

Erling Braut Håland heldur áfram að fara á kostum í Meistaradeild Evrópu. Hann skoraði tvö af mörkum Dortmund sem vann 3-2 sigur á Sevilla á útivelli í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Það voru heimamenn sem byrjuðu betur og Suso kom þeim yfir á sjöundu mínútu. Eftir að hafa fíflað þá gulklæddu, fór skot hans af varnarmanni Dortmund og í netið. Mahmoud Dahoud jafnaði hins vegar metin tóllf mínútum síðar.

Þá var röðin komin að Håland. Hann kom Dortmund yfir á 27. mínútu eftir gott samspil við Jadon Sancho og hann kom Dortmund í 3-1 tveimur mínútum fyrir hálfleik. Eftir skyndisókn kom Marco Reus boltanum á Norðmanninn sem skoraði.

Þannig stóðu leikar allt þangað til á 84. mínútu. Sevilla náði þó að minnka muninn í 3-2 en þar var fyrrum framherji Newcastle á ferðinni; Luuk de Jong. Fimm mörk í Andalúsíu í kvöld.

Lokatölur 3-2 en liðin mætast á nýjan leik þann 9. mars.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira