Fótbolti

Nýliðarnir skelltu toppliði AC Milan

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Zlatan og félagar komust lítt áleiðis í kvöld.
Zlatan og félagar komust lítt áleiðis í kvöld. vísir/Getty

Óvænt úrslit urðu í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar topplið AC Milan steinlág fyrir nýliðum Spezia.

Fyrri hálfleikur var markalaus en eftir tólf mínútna leik í síðari hálfleik kom Giulio Maggiore heimamönnum í Spezia í forystu.

Skömmu síðar, eða á 67.mínútu, tvöfaldaði Simone Bastoni forystuna fyrir heimamenn.

AC Milan tefldi fram fjölda sóknarmanna í leiknum en tókst ekki að eiga svo mikið sem eitt skot á mark Spezia.

2-0 fyrir Spezia því lokatölur og getur Inter Milan því tyllt sér upp í toppsæti deildarinnar þegar liðið fær Lazio í heimsókn á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×