Lífið

Skrautleg ferð Lóu til spákonu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir ræddi um lífið við Snæbjörn Ragnarsson.
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir ræddi um lífið við Snæbjörn Ragnarsson.

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er sennilega myndlistarkona fyrst og fremst en hún er líka forkólfur og stofnandi hljómsveitarinnar FM Belfast.

Hún segist vera intróvert með lærða extróvert-hegðun, finnst hlutirnir fyndnari eftir því sem þeir eru meira óviðeigandi og skilur ekki hversdagslega hluti á borð við kaffivélarspjall og vangaveltur um líðandi stund.

Snæbjörn Ragnarsson ræddi við Lóu í þættinum Snæbjörn talar við fólk.

Hún var frekar undarlegt barn og unglingur, fór erfiðu leiðina í gegnum skóla og reyndi oftar en ekki að passa inn í hólf sem hentuðu henni ekki. Í dag hefur hún slakað á emó-hugsununum, hefur óbilandi húmor fyrir sjálfri sér og kemur honum til skila í gegnum teiknimyndasögur sem hún birtir á vefsíðunni Lóaboratoríum og alla samfélagsmiðla sem hún kemur nálægt. 

Hér að neðan má hlusta á brot úr viðtalinu.

Klippa: Snæbjörn talar við fólk - Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Í viðtalinu segir hún sögu þegar hún fór til spákonu og var hún ekki beint hrifin.

„Ég fór einu sinni til spákonu sem horfði á mig og sagði, já bróðir þinn. Ég horfði á hana og svaraði, ég á engan bróður. Þá sagði spákonan að mamma mín hefði þá farið í fóstureyðingu,“ segir Lóa sem hitti seinna sömu konu um einu ári seinna.

„Hún heilsaði mér bara og kynnti sig fyrir mér eins og við hefðum aldrei verið saman í sama umdæminu. Mér fannst það mjög áhugavert því ef þú ert svona næmur á fólk þá myndi maður ætla að hún hefði munað eftir því að hafa hitt mig. Mér fannst sjúklega skemmtilegt samt að fara til hennar og ástæðan fyrir því að ég fór til spákonu var heimaverkefni í ritlistinni. Þetta er bara það skrýtið að þetta verður áhugavert.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×