Fær fimm skiptinga óskina sína uppfyllta Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. janúar 2021 12:01 Pep Guardiola má loksins gera fimm skiptingar þegar Manchester City sækir Manchester United heim í undanúrslitum enska deildabikarsins annað kvöld. getty/Peter Powell Gera má fimm skiptingar í undanúrslitum og úrslitaleik enska deildabikarsins í fótbolta. Leikið verður í undanúrslitum deildabikarsins í dag og á morgun. Í kvöld mætast Tottenham og Brentford og annað kvöld er komið að leik Manchester-liðanna, United og City. Í gær var greint frá því að lið mættu gera fimm skiptingar í þeim leikjum sem eftir eru í deildabikarnum en ekki þrjár eins og venjulega. Þá mega lið vera með níu leikmenn á varamannabekknum. Ef leikirnir verða framlengdir mega liðin gera aukaskiptingu þá. Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, ætti að gleðjast yfir þessu en hann vill að liðin í ensku úrvalsdeildinni fái að gera fimm skiptingar í leikjum eins og lið í öðrum stóru deildum Evrópu. Þessar breytingar hafa ekki mikil áhrif á Thomas Frank, stjóra Brentford, en liðin í ensku B-deildinni mega gera fimm skiptingar í leikjum. Venjulega er leikið heima og að heiman í undanúrslitum deildabikarsins en því var breytt á þessu tímabili til að minnka álag á leikmenn vegna þéttrar leikjadagskrár. Leikur Tottenham og Brentford hefst klukkan 19:45 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Leikið verður í undanúrslitum deildabikarsins í dag og á morgun. Í kvöld mætast Tottenham og Brentford og annað kvöld er komið að leik Manchester-liðanna, United og City. Í gær var greint frá því að lið mættu gera fimm skiptingar í þeim leikjum sem eftir eru í deildabikarnum en ekki þrjár eins og venjulega. Þá mega lið vera með níu leikmenn á varamannabekknum. Ef leikirnir verða framlengdir mega liðin gera aukaskiptingu þá. Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, ætti að gleðjast yfir þessu en hann vill að liðin í ensku úrvalsdeildinni fái að gera fimm skiptingar í leikjum eins og lið í öðrum stóru deildum Evrópu. Þessar breytingar hafa ekki mikil áhrif á Thomas Frank, stjóra Brentford, en liðin í ensku B-deildinni mega gera fimm skiptingar í leikjum. Venjulega er leikið heima og að heiman í undanúrslitum deildabikarsins en því var breytt á þessu tímabili til að minnka álag á leikmenn vegna þéttrar leikjadagskrár. Leikur Tottenham og Brentford hefst klukkan 19:45 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Carabao Cup er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Carabao Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Carabao Cup er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Carabao Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Enski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Sjá meira