Kvíðakast hvert sinn sem hreyfir vind Garðar Örn Úlfarsson skrifar 15. desember 2014 07:00 Ástand hússins er vægast sagt skelfilegt og versnar stöðugt. „
Þetta er eiginlega sjálfheldumál,“ segir Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, um erfiða stöðu sveitarfélagsins gagnvart íbúðarhúsi sem er í niðurníðslu í plássinu.Eins og fram kom í Fréttablaðinu á föstudag stendur nágrönnum íbúðarhússins Víkur í Garði verulegur stuggur af bágu ástandi hússins. Þakið er að hruni komið og fiskineti hefur verið brugðið yfir húsið til þess að freista þess að hindra að lausar þakplötur fjúki og slasi fólk og skemmi eigur þess. Húsið er í eigu sextugs karls og fimmtugrar konu sem áður voru í sambúð. Konan er flutt úr húsinu en maðurinn býr þar enn og mun hafast við í einu kjallaraherberginu þar sem skjólið er mest fyrir veðri og vindum. Hann hefur ekki sinnt því að hindra skemmdirnar á húsinu eða koma því í betra horf.Magnús StefánssonMagnús segir viðræður við eiganda hússins hafa staðið yfir að undanförnu. „Við höfum lagt að honum að gera úrbætur á húsinu. Eins og sést þá hefur það ekki borið mikinn árangur,“ segir hann. Bæjarstjórinn segir að það eina sem sveitarfélagið geti gert sé að fara í formlegt ferli með málið þar sem eigandanum er gefinn frestur til úrbóta. „Að öðrum kosti láti sveitarfélagið gera það á hans kostnað og við erum að vinna í því að koma þessu ferli af stað,“ segir hann. Fyrir meira en tveimur og hálfu ári, í mars 2012, sögðu Víkurfréttir frá því að Garður hefði boðað húseigandanum að lagðar yrðu á hann 30 þúsund króna dagsektir frá 1. júní það ár ef hann kæmi ekki skikki á húsið. Þeim var ekki beitt og Magnús kveðst ekki þekkja þá sögu því þetta hafi verið fyrir hans tíð sem bæjarstjóri. „Við höfum þetta dagsektaúrræði en mér skilst að við getum gefið honum frest og síðan gripið inn í málið með einhverjum hætti á hans kostnað,“ segir Magnús sem kveður nú skoðað hjá bænum hvernig betur megi tryggja húsið þar til framtíðarlausn finnst. Magnús undirstrikar að málið sé ekki einfalt því réttur eigandans sé mikill og huga þurfi að kostnaðarhliðinni. Bæjarstarfsmenn séu sendir reglulega að húsinu til að fylgjast með. „Maður fær eiginlega kvíðakast í hvert sinn sem hreyfir vind. Það þarf að afstýra þeirri hættu sem stafar af þessu og við erum að vinna að ákveðinni lausn sem við vonumst til að ná í samvinnu við eigandann,“ segir bæjarstjórinn.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira