Líst illa á tillögu um að flytja Rarik á Sauðárkrók Haraldur Guðmundsson skrifar 15. desember 2014 07:00 Megináhersla Rarik er á raforkudreifingu en um 90 prósent af dreifikerfum í sveitum landsins eru í umsjá fyrirtækisins. „
Mér hugnast þessi tillaga ekki. Fyrirtækið er með starfsstöðvar á 22 stöðum á landinu og í mínum huga verður áfram þörf fyrir að stærsta skrifstofan verði í Reykjavík,“ segir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri Rarik, um tillögu Norðvesturnefndar ríkisstjórnarinnar um að flytja höfuðstöðvar fyrirtækisins á Sauðárkrók.Tryggvi Þór HaraldssonNefndin hefur sent 26 tillögur til ríkisstjórnarinnar um hvernig efla megi fjárfestingar, byggðaþróun og fjölga atvinnutækifærum á Norðurlandi vestra. Fréttastofa RÚV greindi frá því á laugardag að tillaga um að færa höfuðstöðvar Rarik á Sauðárkrók væri á meðal þeirra. Um tvö hundruð manns starfa hjá fyrirtækinu og þar af um fimmtíu í höfuðstöðvunum í Reykjavík. Tryggvi segir Sauðárkrók ekki vera ákjósanlega staðsetningu fyrir höfuðstöðvar fyrirtækisins. „Ég tel til dæmis að það sé meira framboð af háskólamenntuðu fólki í Reykjavík og það er í raun og veru ástæðan fyrir því af hverju ég tel að stærsta skrifstofan eigi að vera í Reykjavík. En þetta er auðvitað á endanum ákvörðun stjórnvalda og ef þau ákveða að fara einhverja svona leið þá hljóta þau að velta slíkum hlutum fyrir sér. Mér finnst þó alls ekki tímabært að fara á taugum yfir þessu eins og staðan er í dag,“ segir Tryggvi. Hann bendir á að þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem tillaga um að flytja Rarik norður er lögð fram. Árin 1996 og 2000 hafi meðal annars staðið til að færa höfuðstöðvarnar til Akureyrar. „Það er ekkert langt síðan að hugmyndin um Sauðárkrók kom fyrst upp frá einhverri sambærilegri nefnd. Það heyrði ég fyrst fyrir einhverjum fimm árum þannig að þetta hefur áður komið upp.“ Stefán Vagn StefánssonTillögur Norðvesturnefndarinnar voru kynntar ríkisstjórninni á föstudag. Nefndin var skipuð í maí síðastliðnum og Stefán Vagn Stefánsson, oddviti framsóknarmanna í Skagafirði, er formaður hennar. „Þetta eru alls 26 tillögur og ég vil síður tjá mig um þær að svo stöddu. Við erum búin að skila þeim inn til ríkisstjórnarinnar og þær eru þar. Verkefni okkar hlýtur þá að vera að fara yfir þetta með oddvitum ríkisstjórnarflokkanna og vinna í þessum tillögum áfram og setja í framkvæmd þær sem samstaða er um að farið verði í. Það er næst á dagskrá nefndarinnar,“ segir Stefán.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira