Innlent

Afleitt veður á Austfjörðum

Vísir/Auðunn
Afleitt veður er á Austfjörðum og spáir Veðurstofan að svo verði alveg fram á kvöld. Þar gengur á með éljum  og mikill skafrenningur gerir það að verkum að þar er ekkert ferðaveður.

Heimamenn virðast hafa ahdlið kyrru fyrir í nótt, samkvæmt mælum Vegagerðarinnar og björgunarsveitarmenn hafa ekki verið kallaðir út í nótt, eftir mörg útköll í gærdag.

Engin kennsla verður í grunnskólanum á Eskifirði og heldur ekki í leikskólanum Dalborg þar í bæ, og að líkindum er ssömu sögu að segja úr öðrum bæjum á Austfjörðum. 

Er allt á kafi í snjó hjá þér? Sendu okkur mynd á ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×