Innlent

446 þúsund Íslendingar árið 2065

Samúel Karl Ólason skrifar
Stúlkur sem fæðast árið 2065 geta vænst þess að verða 88,6 ára en drengir 84,3 ára.
Stúlkur sem fæðast árið 2065 geta vænst þess að verða 88,6 ára en drengir 84,3 ára. Vísir/Stefán
Íslendingum mun fjölga um 120 þúsund á rúmlega 50 árum, samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofu Íslands. Bæði vegna fólksflutninga og náttúrulegrar fjölgunar. Stúlkur sem fæddust á þessu ári geta vænst þess að verða 83,4 ára gamlar en nýfæddir drengir 79,5 ára.

Stúlkur sem fæðast árið 2065 geta vænst þess að verða 88,6 ára en drengir 84,3 ára.

Hagstofan hefur birt mannfjöldaspá 2014-2065 sem sýnir stærð og samsetningu mannfjölda í framtíðinni. Spáin er byggð á endurnýjuðum tölfræðilíkönum fyrir búferlaflutninga, frjósemi og dánartíðni.

Þrjár spár eru birtar sem kallast lágspá, miðspá og háspá. Samkvæmt lágspá verða Íslendingar 531 þúsund árið 2065 og 377 þúsund samkvæmt lágspánni.

Samkvæmt spá Hagstofunnar verður fjöldi aðfluttra hærri en fjöldi brottfluttra á hverju ári og er það fyrst og fremst vegna erlendra innflytjenda. Íslendingar sem flytja frá landinu verða þó áfram fleiri en þeir sem flytja til landsins.

Þá gerir Hagstofan ráð fyrir því að árlegur heildarfjöldi karla verði minni en heildarfjöldi kvenna, á hverju ári frá 2030. Það er rekið til meira langlífis kvenna.

Samkvæmt spánni mun hlutfall 64 ára og eldri fara yfir 20 prósent af heildarmannfjölda árið 2037 og yfir 25 prósent árið 2062.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×