Bílainnflutningur slær öll met 29. júlí 2005 00:01
Vöruskiptajöfnuður í tímabilinu janúar-júní var neikvæður um 34,3 milljarða á þessu ári, sem er 21 milljarði meiri halli en á sama tíma í fyrra. Í júnímánuði einum voru voruskiptin neikvæð um 10,2 milljarða, sem er mesti vöruskiptahalli sem um getur í einum mánuði hér á landi. Mestu munar um innflutning á bílum og eldsneyti. "Það hefði mátt búast við mun meiri halla hefði sjávarútvegur ekki verið að eflast," segir Snorri Jakobsson, hagfræðingur hjá greiningardeild KB banka. "Það er fátt annað sem kemur á óvart." Snorri segir það fyrst og fremst hátt gengi, stóriðjuframkvæmdir, hækkandi eldsneytisverð á heimsmarkaði og almenna bjartsýni sem valdi vöruskiptahallanum. "Við höfum séð bílainnflutning aukast mjög lengi." Hann segir heildarverðmæti innfluttra bíla nú tvöfalt meira en á árunum 1999-2000, sem voru metár. Snorri segir þetta þó ekki endilega vera slæmt. "Það er að koma fjármagn inn í landið á móti þessum vöruskiptum vegna stóriðjuframkvæmda og með lántökum en fyrr eða síðar mun ójafnvægi í inn- og útflutningi leiða til þess að gengi krónunnar sígi." Hækkandi gengi hefur valdið vandræðum í sjávarútvegi en ef marka má hagtölurnar virðist sjávarútvegurinn standa þetta ágætlega af sér. Útflutningsverðmæti sjávarafurða er aðeins að lækka um 350 milljónir miðað við sama tíma í fyrra - hefði gengið staðið í stað hefði verðmæti hans aukist um 8,4 prósent. "Í ársbyrjun höfðu menn væntingar um að þetta yrði gott ár," segir Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur LÍÚ. Hann segir gengið nú vera 16 prósentum hærra en menn hafi áætlað þá. Einhverjir útgerðarmenn séu að bæta vöruskiptajöfnuð hagkerfisins með útflutningi sem skilir tapi þar sem viðskiptasamningar hafi verið gerðir fram í tímann á grundvelli rangra væntinga. "Það eru vonbrigði að útflutningsverðmæti skuli standa í stað og líklega eru þetta tíu til ellefu milljarðar sem sjávarútvegurinn er að tapa vegna hás gengis."
Fréttir Innlent Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Fleiri fréttir „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif Sjá meira