Fækkað um helming hjá varnarliðinu 29. apríl 2005 00:01
Hermönnum á Keflavíkurflugvelli hefur fækkað um ríflega helming frá 1990. Þá voru tæplega 3300 hermenn staðsettir hérlendis en þeir voru um 1450 í byrjun þessa árs. Íslenskum starfsmönnum varnarliðsins fækkaði um 38 af hundraði á sama tíma, úr 1086 í 674. Þrátt fyrir þessa fækkun eru umsvif varnarliðsins enn veruleg hérlendis og fjárhagsleg áhrif af veru þess umtalsverð. Þannig námu heildargreiðslur til íslenskra aðila á vegum varnarliðsins árið 2003 samtals tæpum tólf milljörðum króna á árinu 2003. Að launakostnaði frátöldum skiptast greiðslur fyrir verktöku og kaup á vörum og þjónustu þannig að fyrirtæki og stofnanir á Suðurnesjum fengu ríflega tvo og hálfan milljarð í sinn hlut en fyrirtæki og stofnanir á höfuðborgarsvæðinu og í öðrum landshlutum samtals tæpa fimm milljarða króna. Sjötíu af hundraði þeirra sem starfa fyrir varnarliðið eru búsettir á Suðurnesjum. Nettótekjur íslenska hagkerfisins á síðasta ári af viðskiptum og þjónustu við varnarliðið, áðurgreindir tólf milljarðar samsvara einu og hálfu prósenti af vergri landsframleiðslu en til samanburðar námu fjárhagsleg umsvif varnarliðsins 2,6 prósentum af vergri landsframleiðslu árið 1990. Til hliðsjónar þá kostaði rekstur varnarliðsins á síðasta ári um 18 milljarða króna eða um 250 milljónir dollara. Tölur um fjölda hermanna segja ekki alla söguna um fjölda þeirra sem hér dvelja í tengslum við varnarliðið. Þær eru mun hærri þegar fjölskyldur hermanna eru reiknaðar með. Heildarfjöldi þeirra sem hér dvöldu á vegum hersins árið 1990 var þannig um fimm þúsund manns en var liðlega 3330 í upphafi þessa árs.
Fréttir Innlent Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Sjá meira